rannsókn á aflandsfélögum Íslendinga og skattundanskotum.
Herra forseti. Það er rétt hjá þingmanninum að óskað er eftir stöðuskýrslu. Ég held að það sé mjög mikilvægt og ég var einmitt að fá svör frá tveimur ráðherrum um nefndarskipan. Ég held að eitt af því sem þingið geti gert betur þegar nefndir eru skipaðar sé að setja þeim tímaramma. Mér finnst allt of mikið um að við skipum nefndir sem eru ekki með tímaramma. Ég tek undir það varðandi stóru rannsóknarnefndirnar sem við höfum skipað að við höfum lært af því, ég vona það. Það er nýbúið að mæla fyrir máli sem skerpir svolítið á starfseminni. Það er í anda þess að við fáum að fylgjast með framvindunni. Við erum öll sammála um að gera hefði mátt betur í sumum af þeim skýrslum sem unnar hafa verið, bæði í tímafaktornum og í kostnaði, og stundum var farið í hluti sem ekki hefði þurft að fara í.
En fyrst og síðast snýr þetta að því sem hér er rakið. Hvað annað leiðir af því og hvort við getum gert eitthvað betur varðandi CFC-reglurnar eða upplýsingaskiptasamningana eða eitthvað slíkt verður þessi vinna að leiða í ljós, hvort það verður einhver hliðarafurð eða niðurstaða eða eitthvað slíkt sem þessir aðilar komast að raun um að þurfi að gera til að ná enn þá betur utan um þetta, og sjálfsagt að gera það. Eins og ég segi er það ekki uppleggið þótt þetta hangi allt saman. Ég hef mikla trú á því að þingið afgreiði þetta tiltölulega skjótt því að við erum sammála um, vona ég, að mikilvægt er að fara ofan í þetta. Maður heyrir að fólki finnst það skipta verulegu máli. Við upplifum í rauninni enn þá, svolítið eftir að hrunið varð, að það kemur eitthvað upp sem fólk tengir við óheiðarleika og spillingu og annað slíkt. Við þurfum að fá botn í þessi mál. Ég held (Forseti hringir.) að þetta sé meðal annars leið til þess.