friðun miðhálendisins.
Virðulegi forseti. Ég þakka jákvæð orð í minn garð varðandi ræðu á ársfundi Landsvirkjunar og sömuleiðis fyrir tækifærið hér í þingsal til þess að ræða þessi mál í víðu samhengi. Hér er spurt sérstaklega í tilefni af því að fjármálaráðherra fer með hlut ríkisins í Landsvirkjun og það sett í samhengi við hugmyndir um friðun miðhálendisins. Þá get ég ekki annað en komið því að í upphafi að fjármála- og efnahagsráðherra fer með þennan hlut en það er mikilvægt að ráðherrann hefur enga heimild til að hlutast til um viðskiptamálefni fyrirtækja eins og Landsvirkjunar eða annarra í opinberri eigu sem starfa á samkeppnismarkaði. Það er svo að Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, fylgist mjög náið með öllum samskiptum stjórnvalda við fyrirtækið og opinberum ummælum einstakra ráðherra um málefni þess í þeim tilgangi að tryggja að öruggt sé að stjórnvöld hafi ekki áhrif á ákvarðanatöku eða orkusölusamninga þess vegna hættunnar á að fyrirtækið sé notað í pólitískum tilgangi og brjóti þar með strangar reglur á EES-svæðinu um ríkisstyrki. Þetta verð ég að hafa sagt hér vegna þess að málið er sett í samhengi við eignarhlutinn í Landsvirkjun.
Ég hef á undanförnum árum mælt með því að það sé á vettvangi rammaáætlunar um vernd og orkunýtingu landsvæða sem við undirbúum hina pólitísku stefnumörkun á þessu sviði þar sem reynt sé að vega og meta staðreyndir og rök, þar með talin tilfinningaleg rök, sem mér finnst mikilvægt að komist betur að í umræðunni. Ég verð að segja að það að við séum að skapa betra svigrúm fyrir slík rök er ekki annað en merki um þær miklu framfarir sem hafa orðið á Íslandi, bæði í efnahagslegu samhengi sem og öðru. Virkjunarkostir sem í dag væru algerlega óásættanlegir komu til skoðunar og framkvæmda fyrr á tíð, mögulega vegna þess að það var einfaldlega svo mikil efnahagsleg þörf fyrir þær framfarir sem fylgdu slíkum virkjunarkostum. En ég tel sem sagt að við nýtum vettvang rammaáætlunar fyrst og fremst til þess að vega og meta þau rök öllsömul sem hníga að því hvaða stefna sé skynsamlegust í þessum efnum. Það er svo verkefni fyrirtækja eins og Landsvirkjunar að taka sínar ákvarðanir innan þeirra takmarkana sem slík stefna setur.
Ég tel eins og fram er komið að hálendi Íslands sé einstakur staður á heimsvísu og fagna því að mikil samstaða er um áframhaldandi verndun á miðhálendi Íslands. Ég sagði í ræðunni á ársfundi Landsvirkjunar að tillaga um matsáætlun á Sprengisandslínu væri skiljanlega umdeild og að það hlyti að vega þungt að aðrir valkostir væru í boði til að byggja upp raforkuflutningskerfið. Umræðan um frekari nýtingu orkuauðlinda og verndun umhverfis eins og stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu er slíkt grundvallarmál að það snertir hagsmuni allra landsmanna og komandi kynslóða. Það er slíkt mál að hin pólitíska umræða verður að vera málefnaleg og byggja á faglegum grunni. Þetta er ekki spurning um einhver tilfallandi verkefni, einhverja einstaka virkjunarkosti á næstu mánuðum, einstaka áhugasama orkukaupendur sem núna eru á sjónarsviðinu eða birtast á næstu mánuðum eða missirum, þetta er málefni sem varðar næstu áratugi og enn lengra. Þess vegna er mikilvægt að okkur takist að vanda umræðuna í þingsal, hefja okkur upp yfir hefðbundið pólitískt dægurþras sem um of hefur einkennt umræðu um þetta málefni og gera vel í allri þessari umræðu og stefnumótun. Enda ætla ég að þingheimur sé nokkuð samstiga í þessari umræðu að það þurfi að skila heillavænlegri niðurstöðu fyrir landsmenn alla um ókomna tíma.
Þetta er svo stórt mál að erfitt er að koma öllu að sem mann langar til að segja í nokkurra mínútna ræðu. Ég ætla bara að benda á nokkra hluti. Á því svæði sem nefnt er miðhálendið erum við þegar komin með nokkrar virkjanir. Við erum líka með nokkuð þéttriðið vegakerfi. Við erum með ýmislegt annars konar rask sem þó hefur átt sér stað án þess að miðhálendinu hafi verið fórnað eða einhvern veginn slátrað. Ég ætla líka að benda á að friðun er ekki einhliða ákvörðun um að ekkert mannlegt megi gerast á viðkomandi svæði. Það geta verið inni ýmsir valkostir til nýtingar á friðuðum svæðum. Þess vegna finnst mér að áður en við erum búin að skoða allar afleiðingar þess að fara að friða allt miðhálendið sé of stórt skref, án frekari skoðunar, að segja: (Forseti hringir.) Já, við skulum gera það, í einhverri stemningu augnabliksins. Mér finnst að við þurfum (Forseti hringir.) að skoða allar hliðar málsins með hliðsjón af þeim þáttum sem ég hef nefnt og öðrum. En ég hverf ekki frá þeirri skoðun minni að mér líkar illa og (Forseti hringir.) mér finnst í raun og veru algjörlega ómöguleg hugmyndin um háspennulínur yfir miðhálendið og get ekki séð hana fyrir mér í framkvæmd.