145. löggjafarþing — 105. fundur,  2. maí 2016.

friðun miðhálendisins.

729. mál
[16:08]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf):

Virðulegi forseti. Landsfundur Samfylkingarinnar samþykkti í fyrra stefnu um að miðhálendið yrði gert að þjóðgarði. Í samræmi við það höfum við þingmenn flokksins lagt slíka tillögu fram á Alþingi.

Ég vil fagna tóninum í máli hæstv. fjármálaráðherra og tek undir með honum að þetta snýst ekki um einstaka virkjunarkosti. En hugmyndin um þjóðgarð á miðhálendinu er akkúrat byggð á því að marka þarf almenna stefnu því að annars verða til einstakir virkjunarkostir sem geta síðan spillt til langframa möguleikanum á því að búa til þjóðgarð. Gott dæmi er Skrokkalda sem var til umræðu í fyrravetur og er nú í nýjustu tillögu í nýtingarflokki og er innan miðhálendisins. Það sem skiptir máli, held ég, þegar menn nálgast þetta, ég skil áhyggjur hæstv. ráðherra af einhverjum tíðaranda, en ég vil líka ítreka að við erum komin í þá stöðu að ferðaþjónustan er orðin mikilvægasta gjaldeyrisöflunaratvinnugreinin og þá horfir (Forseti hringir.) friðun í þágu ferðaþjónustu öðruvísi við út frá efnahagslegum sjónarhóli. (Forseti hringir.) Ég vil því hvetja hæstv. ráðherra til frekari dáða í þessum efnum (Forseti hringir.) en fagna tóninum í svörum hans.