145. löggjafarþing — 107. fundur,  3. maí 2016.

fjármálastefna 2017--2021.

741. mál
[17:41]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Frú forseti. Ég geri ráð fyrir að hæstv. fjármálaráðherra sé ekki langt í burtu alla vega. Hann hefur nú kannski ekki verið duglegur við að sitja hér í salnum, en hvað um það.

Það er auðvitað margt jákvætt sem hægt er að gleðjast yfir í sambandi við þróun þjóðarbúskapar okkar Íslendinga. Segja má að velflestar helstu kennitölur séu á ágætu róli. Við upplifum hér sjötta hagvaxtarárið í röð. Við upplifum bata í þjóðarbúskapnum á flesta mælikvarða, sem gekk í garð á síðasta hluta ársins 2010. Þetta er eitt samfellt ferli Íslands á leiðinni út úr hruninu. Þó að enn séu til svo litlir menn í stjórnmálum að þeir reyni að dagsetja það allt saman við upphaf stjórnarskipta í maílok 2013 þá tala gögnin sínu máli sem hér eru reidd fram. (Gripið fram í.)

Það geta allir vel við unað sem eiga hlut í því að hafa lagt af mörkum til þess að koma Íslandi upp úr alvarlegustu efnahagskreppu og mestu vá sem að okkur hefur steðjað efnahagslega frá því að við urðum sjálfstætt lýðveldi og jafnvel lengur. Sex ár með samfelldum og nokkuð góðum hagvexti þar sem árin 2011 og 2013 leggja verulega af mörkum ásamt ágætum hagvexti á síðasta ári og horfum núna. Atvinnuleysi er komið niður í um 1/3 af því sem það var þegar það var mest, undir 3% í staðinn fyrir 9%.

Nýjar vaxtargreinar í íslensku atvinnulífi hafa sótt verulega í sig veðrið og hafa lagt mikið af mörkum til hagvaxtarins og atvinnusköpunar á undanförnum árum. Það athyglisverða er að það eru aðallega nýjar greinar eða vaxandi greinar sem eflast nú til hliðar við hinar hefðbundnu.

Þar fer auðvitað langfremst ferðaþjónustan sem er orðin stærsta gjaldeyrisöflunargrein þjóðarbúsins. En það má líka nefna hugbúnaðar- og tæknigreinar og skapandi greinar. Með öðrum orðum, það er eitthvað annað sem kemur Íslandi í aðalatriðum út úr erfiðleikunum, efnahagslega og hvað atvinnu snertir, ef við notum gamalkunna samlíkingu þegar sú krafa var gerð til okkar margra hverra á stóriðjuslagsárunum að við nefndum þetta „eitthvað annað“ sem átti að koma í staðinn fyrir álver. Kannski man hv. þm. Hjálmar Bogi Hafliðason eftir slíkri umræðu úr sínum heimaslóðum. (HBH: Ég man ekki neitt.) Ráðist var af hörku á alla þá sem ekki vildu álver í hvern fjörð (Gripið fram í.)og sagt: Þið segið bara: Það er eitthvað annað sem á að koma í staðinn. (Gripið fram í.)

Nú hefur það einmitt gerst, hv. þingmaður, að þetta „eitthvað annað“ hefur blómstrað í íslensku atvinnulífi og leggur vel af mörkum til hagvaxtar og atvinnusköpunar. Það er gott.

Ef reynslan hefur kennt okkur Íslendingum eitthvað þá er það að ganga hægt um gleðinnar dyr. Þá er það að virkilega að kunna að fóta okkur einmitt þegar við teljum að hlutirnir gangi okkur í hag.

Ég verð að segja að ég hef vissar áhyggjur. Ég hef áhyggjur þegar ég heyri gagnrýnislausan sjálfbirgingshátt manna í umtali um efnahagsmál og horfur fram undan. Ég hef af því áhyggjur af því að ég hef langa reynslu af því hversu hættulegt það er.

Má ég biðja um að við fáum ekki aftur forsætisráðherra eins og þann sem sagði snemma árs 2006 að það væri alveg sérstaklega öfundsvert að vera forsætisráðherra í landi þar sem allt gengi svona vel. Og ræðurnar sem við þurftum að hlusta á hér á árunum fyrir hrun um hvað allt væri stórkostlegt og dásamlegt, sem leyfðum okkur að vara við og gagnrýna — munum eftir þeim og horfum á mælana.

Því miður er það auðvitað svo að þó að margt sé jákvætt, frú forseti, og horfur að ýmsu leyti ágætar, eru líka að byrja að teiknast upp hættumerki. Ég ætla að nefna nokkur þeirra.

Alvarlegasti veikleiki þessa plaggs er sá að allur grunnur þess er byggður á því að hér verði samfelldur og viðvarandi hagvöxtur til 2021. Gangi það eftir verður það auðvitað stórkostlegt. En aldrei áður hefur það gerst í hagsögu Íslands að við hefðum tíu ára samfelldan hagvöxt. Það verður því alveg nýtt í okkar sögu ef þetta rætist. En vonum það besta, að sjálfsögðu. En um leið og þetta breytist að einhverju ráði þá veikjast mjög forsendur þessara áætlunargerða hér vegna þess að þær byggja á því að viðvarandi hagvöxtur auki svigrúm til framkvæmda og útgjalda og fjárfestinga allan tímann, ekki ráðstafanir sem menn ætla að gera innan ramma ríkisfjármálanna eða með tekjuöflun eða með öðrum hætti.

Í öðru lagi eru gamalkunnug veikleikamerki byrjuð að sýna sig, en þau hafa ekki sömu áhrif og stundum áður, þ.e. vöruskiptajöfnuðurinn er orðinn neikvæður. Hann snerist við í fyrra og það vantaði 30 milljarða upp á að við flyttum út nægar vörur til þess að eiga fyrir því sem við fluttum inn. En afgangurinn af þjónustuviðskiptum er svo mikill og innstreymi gjaldeyris vegna þess að enn þá er viðskiptajöfnuður í heild í þokkalegu lagi. Hér áður hefðu það verið stórkostleg hættumerki og alltaf endað eins; þegar kominn var vöruskiptahalli var stutt í gengisfellingar og óáran.

Í þriðja lagi er mikill veikleiki í þessu plaggi, og ég vona að hæstv. fjármálaráðherra sé einhvers staðar nálægur. Mér þykir miður að hæstv. ráðherra skuli ekki vera viðstaddur umræðuna og kannski taka við mann andsvar ef hann er ósáttur. En það er hans vandamál.

Hér er verið að svelta áfram fjárfestingar í innviðum. Það gengur ekki. Þetta er ónýt áætlun hvað varðar fjárfestingaráform ríkisins næstu fimm árin. Samgönguáætlunin sem er á okkar borðum er ónýt vegna þess að það gengur ekki og það er stórslys í vændum ef við sveltum áfram innviðafjárfestinguna í landinu með þessum hætti. Þá greiðum við ekki niður skuld, að minnsta kosti ekki þá skuld, heldur bætum við við hana. Við erum að mynda risavaxna skuld inni í framtíðinni með því að láta vegakerfið grotna niður og samgönguinnviðina veikjast. Það á að halda óbreyttu fjárfestingarstigi ríkisins frá því sem það var á botni kreppunnar, 1,3% af vergri landsframleiðslu. Jú, það á að mjaka því upp í lokin, upp í 1,5%. Það er næstum því einu prósentustigi of lítið því að sagan kennir okkur að ríkið verður að meðaltali að verja að minnsta kosti 1%, 2–2,5% af vergri landsframleiðslu í fjárfestingar ef við eigum að mæta kröfum tímans. Það er stórkostlegur veikleiki í þessari áætlun sem ég get ekki sætt mig við. Það verður að leggja línurnar öðruvísi og næsta ríkisstjórn, sem verður önnur, gjörbreytt frá þessari, mun gera það sem sitt fyrsta verk, ef ég fæ einhverju ráðið, að taka upp forsendurnar, m.a. að þessu leyti.

Það er líka veikleiki á þessari áætlun að afkoma sveitarfélaganna eins og hún er teiknuð hér upp er óviðunandi. Að þau verði á núlli í fimm ár, komist ekki í jákvæða afkomu allan tímann. Af hverju? Af því að tekjustofnar þeirra duga ekki og ríkisstjórnin gerir hér ekki ráð fyrir því á nokkurn hátt að rétta hlut sveitarfélaga. Öll stóru sveitarfélögin fimm í landinu juku skuldir sínar á síðasta ári — juku skuldir sínar. Ætlum við að halda því þannig áfram? Það gengur ekki.

Það er líka veikleiki þessarar áætlunar að svigrúmið, sem fyrst og fremst er myndað vegna hagvaxtar og svo þó að einhverju leyti minnkandi vaxtagreiðslna í endann þegar skuldirnar verða farnar að lækka og þess er farið að gæta verulega í vaxtakostnaði, er þeim annmörkum háð að á móti því svigrúmi sem menn afmarka til útgjalda í málaflokkunum kemur hagræðingarkrafa, aðhaldskrafa upp á 1% eða 0,5% af fjárveitingum til málaflokksins.

Hvað munu menn gera? Jú, í staðinn fyrir að ráðast í þau nýju verkefni sem þar eru munu menn nota hið nýja svigrúm í að mæta aðhaldskröfunni, þannig að í mörgum málaflokkum munu menn fyrst og fremst hjakka í sama farinu. Ég tel að heilbrigðismálin þurfi meira.

Við mætum hér ekki kröfunum um að byggja heilbrigðiskerfið upp af einhverjum krafti. Við mætum ekki kröfunum um að draga úr kostnaðarþátttöku sjúklinga. Við mætum ekki kröfunum um að undirbúa stórkostlega fjölgun aldraðra þar sem sprengja verður í þörfinni fyrir hjúkrunarrými á árunum 2022–2024, það hafa rannsóknir sýnt. En það á að vísu að byggja þau þrjú hjúkrunarheimili sem búið er að ákveða. Ekkert meir. Það er ekki annað inni í þessari áætlun. Það dugar ekki. Ríkisstjórnin er þarna að gera mistök að mínu mati.

Undarlegast er að ríkisstjórnin skuli ekki hafa látið t.d. markaðar tekjur til vegamála fylgja verðlagi undanfarin ár. Það vantar 7 milljarða upp á að svo sé af því að þessi ríkisstjórn hefur engan dug í sér þegar kemur að því að afla tekna til þarfra verkefna. Það er alltaf sama niðurstaðan, að draga það við sig, og menn halda að allt leysist með því að lækka skatta. Menn halda það.

En niðurstaðan er sú, og þessi áætlun ber það með sér, að þrátt fyrir góðar hagvaxtarhorfur og svigrúm sem þær mynda er staðan mjög þröng. Um leið og slægi í bakseglið í þeim efnum eru tekjustofnar hins opinbera, (Forseti hringir.) ríkis og sveitarfélaga, of veikir til að standa sómasamlega undir velferðarsamfélaginu á Íslandi.