145. löggjafarþing — 107. fundur,  3. maí 2016.

fjármálastefna 2017--2021.

741. mál
[18:22]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Frú forseti. Við ræðum hér fimm ára fjármálaáætlun og fjármálastefnu þessarar ríkisstjórnar. Hér hefur verið spurt hvort stefnan og áætlunin byggist á jöfnuði. Ég tel svo ekki vera, þvert á móti dregur með þeim í sundur með íbúum landsins og landsvæðum. Það hefur kannski ekki verið komið mjög mikið inn á það en mér finnst mega vekja sérstaka athygli á því að sum landsvæði fara mjög halloka í áætluninni og stefnu. Hvers vegna segi ég það? Vegna þess að oftar en ekki er verið að tala um að þegar þensla ríkir á ákveðnum landsvæðum eins og á höfuðborgarsvæðinu eigi ríkið ekki að fara fram með neinar fjárfestingar, frekar að halda að sér höndum og koma inn þegar illa árar. Mér þykir að þeir hlutar landsins sem þenslan nær ekki til gjaldi þess oftar en ekki að ríkið haldi þá að sér höndum, ekki er farið í neinar fjárfestingar og beðið eftir að þenslu linni hjá einkageiranum á þéttbýlli svæðum eins og höfuðborgarsvæðinu og hjá Isavia á Keflavíkurflugvelli, svo dæmi sé nefnt. Þetta er grafalvarlegur hlutur. Við þekkjum verk ríkisstjórnarinnar undanfarin ár, hvernig hún hefur haldið á málum og rekið skýra hægri stefnu sem birtist líka í þessari áætlun. Við þekkjum matarskattinn og hvernig hefur verið komið fram við aldraða og öryrkja með að láta ekki laun þeirra fylgja launaþróun í landinu. Við þekkjum hvernig skattkerfið sem hefur gagnast láglaunafólki best hefur verið brotið niður og nú er stefnt að því að þrepin séu eingöngu tvö. Gengið hefur verið mjög hart að framhaldsskólunum og þeir eru í miklum vanda. Það að hefta aðgengi fólks að framhaldsskólunum eftir 25 ára aldur er grafalvarlegur hlutur, sérstaklega gagnvart mörgum landsvæðum. Hér hefur líka komið fram að samneyslan er í sögulegu lágmarki.

Svo hreykja menn sér af því að verið sé að tala um 30 milljarða á næstu fimm árum í heilbrigðiskerfið. Gott og vel, en það þarf meira. Þó að þetta sé vissulega skref í rétta átt þarf að leggja meira fé í heilbrigðismálin og í undirskriftasöfnun hefur komið fram skýr vilji landsmanna til að nota skattana sína til að byggja upp öflugt og traust heilbrigðiskerfi um land allt.

Við þekkjum hvernig ríkisvaldið ætlar núna að jafna kostnaðarþátttöku í heilbrigðiskerfinu, fyrst og fremst með innbyrðis tilfærslu en ekki með því að bæta fjármagni í kerfið til að stefna að því að gera heilbrigðiskerfið gjaldfrjálst. Nei, það kemur ekki neitt fram í áætluninni um að setja eigi fjármuni til þess að lækka kostnaðarþátttöku heldur er hér eingöngu fjallað um að með tilfærslu innbyrðis eigi að mæta þeim mikla kostnaði sem vissulega hvílir á ákveðnum sjúklingum og kominn tími til að hafa þar þak, en það er þá bara tekið af öðrum sem oftar en ekki hafa ekki burði til að standa undir auknum kostnaði.

Ég vil aðeins koma inn á atvinnugreinar eins og landbúnaðinn. Sauðfjársamningurinn og búvörusamningurinn liggja hér undir í áætlun fram í tímann. Ég vil nefna varðandi þá bændur sem eru á bak við sauðfjársamninginn að ráðist er harkalega að sauðfjárbændum á veikum svæðum og þar er 20% lækkun beingreiðslna á næstu árum miðað við þá samninga sem liggja fyrir. Þetta þýðir að viðkomandi bú verða af háum fjárhæðum á ársgrundvelli miðað við það sem er í dag. Þetta verður ekki til þess að styrkja búsetu á veikum svæðum heldur þvert á móti. Menn mega minnast þess að sauðfjársamningar yfir höfuð voru hugsaðir sem hluti af byggðastefnu. Svo er ekki, það á að ganga hart að veikustu svæðunum þar sem sauðfjárbændur starfa í dag og er ég ansi hrædd um að það verði mjög erfitt hjá mörgum þeirra að halda áfram rekstri.

Varðandi ferðaþjónustuna sem er sá atvinnuvegur sem vex og eflist hraðast er eingöngu verið að tala um að gistináttagjaldið hækki úr 100 kr. í 300 kr. Það er með ólíkindum að enn þá sé ekki komin nein niðurstaða í það hvernig ríkið sér fyrir sér að fjármagna innviðauppbyggingu í landinu til að mæta þeim gífurlega fjölda ferðamanna sem streymir til landsins og á bara eftir að aukast. Þá erum við auðvitað að tala um svo margt sem tilheyrir þeim málaflokki. Ég nefni samgöngurnar, ný samgönguáætlun til 2017 ber þess merki að þar er ekki nokkur metnaður á ferðinni og er hreinlega til skammar miðað við þær tekjur sem hafa komið inn af ferðaþjónustunni undanfarið. Þetta verður okkur sem samfélagi dýrt og bitnar ekki bara á ferðamönnum heldur einnig þeim íbúum landsins sem búa við skelfilegar aðstæður vítt og breitt um landið. Menn geta ekki hreykt sér af því að ná jöfnuði og greiða niður skuldir og öðru því um líku þegar þeir draga algjörlega lappirnar í allri innviðauppbyggingu í landinu hvað samgöngur heilt yfir varðar. Þá á ég jafnt við hafnir landsins, flugvelli og vegakerfið. Þetta er allt eins og menn hafi sofnað þyrnirósarsvefni í upphafi kjörtímabils og séu ekki vaknaðir af þeim draumi.

Ef ég kem aðeins inn á sjávarútvegsmálin hefði ég viljað sjá að í þessari áætlun yrðu skoðaðir einhverjir möguleikar á auknum tekjum af þeirri grein. Þá er ég ekki að tala um heilt yfir, einhverja flata hækkun á greininni sem heild. Við vitum að það er eins og hjá almenningi í landinu að menn hafa mismunandi tekjur í greininni. Það hefði þurft að jafna miklu betur, taka virkilega vel til í veiðigjöldunum og horfa til þess að hækka þau í sjávarútvegi þar sem menn, gott og vel, mala gull. Er það vel. Þeir hafa verið að byggja sig upp og fjárfesta og greiða niður skuldir en þar sitja ekki allir við sama borð. Þar eru lítil og meðalstór sjávarútvegsfyrirtæki sem rísa ekki undir sömu veiðigjöldum og risarnir, sem vissulega rísa undir hærri veiðigjöldum. Það er ekkert horft til þess heldur hefur ríkisvaldið afsalað sér tekjum og ætlar sér ekkert annað næstu fimm árin. Það bitnar auðvitað á samfélaginu í heild, hvort sem er heilbrigðiskerfinu, menntakerfinu eða að menn hafi burði til þess að styrkja og bæta kjör aldraðra, öryrkja og barnafólks í landinu. Menn tala um að barnabætur eigi eingöngu að vera fyrir þá tekjulægstu en þannig voru þær ekki hugsaðar í upphafi heldur eiga þær fyrst og fremst að vera til þess að mæta fjölskyldum meðan þær eru að koma börnum sínum á legg af því að því fylgir aukinn kostnaður.

Það er þetta metnaðarleysi sem mér finnst skína í gegnum fjármálaáætlunina miðað við það að hér byrjaði hagvöxtur 2010. Menn njóta þess að allar ytri aðstæður hafa verið okkur hagfelldar, hvort sem er lægra olíuverð eða gífurlegur ferðamannastraumur til landsins sem hefur skapað miklar tekjur. Menn nota ekki hagvöxtinn til að bæta samfélagsinnviðina alla og velferðarkerfið og nýta fyrir almenning í landinu heldur ýta frekar undir að það séu tvær þjóðir í landinu og í raun og veru eru sum landsvæði skilin eftir (Forseti hringir.) sem veik efnahagssvæði sem ekkert á að gera fyrir og þá njóta þau ekki þeirra skatta sem þau hafa greitt til samfélagsins.