145. löggjafarþing — 107. fundur,  3. maí 2016.

Vatnajökulsþjóðgarður.

673. mál
[20:25]
Horfa

Hjálmar Bogi Hafliðason (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka ráðherranum fyrir það svar að framkvæmdastjóri garðsins skuli staðsettur á heimasvæði. Ég held að við getum hins vegar ekki sett það sem skilyrði að hann búi á norður-, austur- eða suðursvæði. Við getum hins vegar kannski sett það sem skilyrði að hann sé búsettur á heimasvæði garðsins og ég fagna því að ráðherrann ætli að beita sér fyrir því.