145. löggjafarþing — 108. fundur,  4. maí 2016.

útreikningur framfærslugrunns námsmanna.

[15:24]
Horfa

Ásta Guðrún Helgadóttir (P):

Virðulegi forseti. Ég ætla að halda áfram þar sem frá var horfið. Í skýrslunni þar sem framfærslugrunnur námsmanna erlendis er reiknaður út var einungis tekið tillit til þess að fólk væri á görðum. Það var ekki tekið tillit til þess hversu mismunandi kostur svokallaðir skólagarðar eða námsgarðar eru.

Frábært að taka dæmi af Slóvakíu. Maður getur komist inn á garð fyrir 188 evrur. En hvað er það? Er það sambærilegt við þá garða sem við bjóðum upp á hérlendis? Ekki er tekið tillit til þess að á görðum, sérstaklega í Austur-Evrópu, t.d. í Ungverjalandi sem kostar 75 evrur, í Póllandi þar sem kostar 100 evrur og í Slóvakíu þar sem kostar 188 evrur, er verið að tala um félagslegt úrræði sem erfitt er að komast í. Fólk sem fer inn á þessa garða þarf að búa við mjög bágar aðstæður og þess vegna kemst það inn. Þarna eru oft þrír til sex saman í herbergi. Það er engan veginn hægt að bera þessar tölur saman við það sem við ætlum að bjóða íslenskum námsmönnum. Þess vegna er þarna forsendubrestur. Það er ekki tekið inn í húsnæðiskostnaðinn ef námsmaðurinn leigir eigið húsnæði og þarf að kaupa húsgögn. Hann þarf mögulega að kaupa internet, þarf hita, rafmagn og þar fram eftir götunum.

Þegar við erum að tala um framfærslu námsmanna erlendis er sá framfærslugrunnur sem miðað er við algjörlega vanmetinn. Í því felst gagnrýni okkar. Þarna er einungis litið til nettóhúsnæðiskostnaðar og byggt á því að námsmenn séu á skólagörðum sem eiga að vera sambærilegir því sem er hér á landi en eru það ekki.

Það er ekki hægt að bera stúdentaíbúðir, einstaklingsíbúðir sem eru í boði hérlendis, saman við sex manna herbergi í Póllandi eða Varsjá þar sem fólk kemur engu fyrir nema sjálfu sér. Raunleiguverð í mörgum þessara borga, sér í lagi í Austur-Evrópu, er mun hærra en það sem kemur fram í þessari skýrslu. Það er ekki nema von að fólk geri verulega alvarlegar athugasemdir við þetta. Þetta er spurning um hvort fólk geti haldið áfram í námi eða ekki.