145. löggjafarþing — 108. fundur,  4. maí 2016.

útreikningur framfærslugrunns námsmanna.

[15:26]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Illugi Gunnarsson) (S):

Virðulegi forseti. Það er rétt að hafa í huga að þegar við lánum til námsmanna á Íslandi er hin sorglega staðreynd sú að við erum enn töluvert fyrir neðan það sem er reiknuð framfærsla hér á landi. Reyndar hefur okkur tekist að hækka lánin þannig að núna erum við komin upp í ein 92% af því sem reiknað er með að sé framfærsla í landinu. Við í þessari ríkisstjórn höfum staðið fyrir því að hækka lánin til námsmanna hér til að reyna að þoka okkur nær núllpunktinum.

Hér er talað um Austur-Evrópulöndin. Í löndum eins og Slóvakíu þar sem lánað var, samkvæmt þeim gögnum sem ég hef, árið 2013 209% fram yfir framfærsluna má augljóst vera að það þarf að skoða. Það er ekki þar með sagt að það verði tekið niður og lánuð berstrípuð framfærslan. Það er í sjálfu sér ekkert endilega þannig en það gefur augaleið að ef menn hafa þá stefnu að það eigi að lána í samræmi við framfærslu hljóta menn að leita eftir því með gögnum hver raunveruleg framfærsla er. Auðvitað geta menn síðan deilt um það og þá er að sjálfsögðu ágætt að taka þá umræðu.

En ef við erum öll sammála um þetta erum við a.m.k. komin heillangt í þessari umræðu. Ég fullyrði að þau gögn sem hafa verið unnin virðast gefa þessa mynd til kynna. Þarna er leitað eftir bestu gögnum. Það er kallað eftir gögnum frá háskólunum sjálfum. Það er kallað eftir gögnum frá ýmsum opinberum stofnunum til að átta sig á hver framfærslan er í hverju landi fyrir sig. En það er alveg augljóst, eins og ég nefndi áðan, að þegar tekin er ákvörðun um að hækka lánin til námsmanna á Íslandi um 20% til að mæta 20% verðbólgu og á sama tíma um 20% í löndum þar sem verðbólgan hafði verið 1–3% myndast skekkja. Það kostaði ansi mikla peninga á sama tíma og það var verið að skera niður í framhaldsskólunum hér á landi um allt að 2 milljarða samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoðunar. Þá var tekin ákvörðun um (Forseti hringir.) að hækka að raungildi um næstum því 20% lán til námsmanna erlendis. Allt þetta ber að skoða í samhengi.