útreikningur framfærslugrunns námsmanna.
Virðulegi forseti. Já, það er alveg rétt að það þarf að skoða þetta í samhengi. Eigum við að ræða það í því samhengi t.d. að stúdentar sem eru í háskólanámi eiga ekki rétt á atvinnuleysisbótum í sumarleyfum? Eigum við að ræða það að íslenskir stúdentar eru núna með sem nemur einu ferðaláni til að ferðast fram og til baka? Ekki á námsári, nei, við erum að tala um eitt ferðalán á gráðu. Sá sem fer í mastersnám fær eitt ferðalán upp á 46 þúsund.
Um hvað erum við að tala þegar við erum að tala um framfærslu? Viljum við að fólk geti ferðast fram og til baka um jólin? Erum við að skoða að jafnvel þarf að standa straum af dýrari bókum? Er tekið tillit til þess að stundum þarf fólk kannski lán til að stunda dýrara nám, t.d. vegna kaupa á tækjakosti?
100 evrur, 100 pund. Mundir þú, hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra, geta lifað á 1.000 pundum í London? Hver einasta króna skiptir þessa stúdenta máli. Mér finnst hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra þurfa (Forseti hringir.) að leiðrétta það sem hefur komið fram og taka mið af þeirri gagnrýni sem hefur komið fram varðandi þessi framfærsluviðmið.