145. löggjafarþing — 108. fundur,  4. maí 2016.

munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra um aðgerðir stjórnvalda vegna aflandsfélaga.

[18:00]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Þetta hafa verið tveir tímar af ágætri umræðu í þinginu í tilefni af skýrslu minni um þær aðgerðir sem við höfum ákveðið að grípa til í stjórnkerfinu vegna þessara mála. Ég hef farið í löngu máli yfir það helsta, að halda áfram alþjóðlega samstarfinu og dýpka það og fylgjast með því sem verið er að gera á vettvangi OECD og annars staðar. OECD hefur reyndar verið í fararbroddi. Við höfum á undanförnum vikum verið þátttakendur á fundum þar og munum fylgja eftir aðgerðum. Áframhald á gerð upplýsingaskiptasamninga og allt alþjóðlegt samstarf verður eflt og því haldið áfram. Svo hef ég gert grein fyrir starfshóp sem ég hef komið á fót og sérstökum aðgerðum til að koma saman upplýsingum um umfang vandans. Þetta ætla ég ekki allt að endurtaka. Í umræðunni hefur víða verið komið við og menn nefna dæmi um það sem menn mundu vilja gera til breytinga á lögum, t.d. að koma inn í lög almennri heimild til kaupa á gögnum.

Sumir hafa tekið mjög djúpt í árinni og í dag hafa fallið nokkur þung orð. Það sem einkennir þau heilt yfir finnst mér fullmiklar alhæfingar. Við höfum ekki á þessum tímapunkti upplýsingar til að alhæfa um að allir þeir sem hafi tengst útgerð í landinu hafi farið með allan sinn gróða á aflandseyjar. Þetta er ekki staður eða tími til að vera með neinar slíkar fullyrðingar, engar slíkar upplýsingar liggja fyrir, eða að einhverjir aðrir hafi vegna einhverra tengsla við einhverjar auðlindir með einhverjum hætti komið þeim fyrir á aflandseyjum. Ég hef ekki séð slíkar upplýsingar.

Ef almenna niðurstaðan er að nýting auðlindanna á Íslandi hafi endað í hagnaði sem hefur síðan farið með skattalagabrotum á aflandseyjar skal ég vera í fremstu fylkingu þeirra sem fordæma slíkt.

Mér finnst það líka hafa verið mjög áberandi í umræðunni að menn vilja ekki gera skilsmun á lögbrotum og síðan því að fylgja lögum þegar kemur að þessum félögum. Hér hefur oft verið nefnt að það sé tvískinnungur og jafnvel hræsni í umræðunni. Hvað er það annað en tvískinnungur af fólki sem hefur komið í þennan sal, í þennan stól, til að setja lög um það hvernig ætti að gefa upp upplýsingar um eignir eða tekjur á þessu svæði og það fólk fer síðan til ríkisskattstjóra, fær leiðbeiningar, prentar úr eyðublöðin, skilar þessu öllu samviskusamlega bara til að sitja hér undir umræðunni um að þetta sama fólk sé, eins og það var orðað áðan, með virkum hætti og eigin vilja að grafa undan velferð í eigin samfélagi? Mér finnst þetta ekki (Forseti hringir.) merkileg umræða. Fólk sem fylgir lögum, sem þetta sama fólk hefur sett, situr undir því að það sé með virkum hætti og eigin vilja að grafa undan velferð í samfélaginu. CFC-löggjöfin tekur til baka meira eða minna allan skattalegan ávinning af því að koma sér fyrir á lágskattasvæðum. Við erum með (Forseti hringir.) gerð upplýsingaskiptasamninga að reyna að tryggja að allt sé gefið upp og það þarf að gera mun á þessum málum og síðan skattsvikunum og lögbrotunum.