145. löggjafarþing — 108. fundur,  4. maí 2016.

grunnskólar.

675. mál
[18:15]
Horfa

Óttarr Proppé (Bf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er margt í frumvarpinu sem er verulega gott að sjá. Sem fyrrverandi skólanefndarmaður í höfuðborginni er mjög mikilvægt að sjá skýrar reglur um tómstunda- og frístundastarf, um möguleika á tengingu skólastarfs og frístundastarfs. Sömuleiðis held ég að margir sem hafa ábyrgð á skólamálum á sveitarstjórnarstigi fagni skýrum reglum um möguleika á samrekstri, jafnvel þvert á sveitarfélög.

Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra um 8. gr. vegna þess að verið er að skýra utanumhald um einkarekstur í skólum. Fram kemur að þegar skóli nýtur samþykktar sveitarstjórnar og hefur þjónustusamning hafi sveitarfélag heimild til þess að setja reglur eða hámark um skólagjöld miðað við opinbert framlag. En í 8. gr. virðist vera eins og ráðherra sé veitt vald til þess að veita leyfi til skóla, jafnvel þvert á vilja sveitarfélaga, að vísu er gert ráð fyrir að hann þurfi að leita umsagnar en ekki tekið fram að hann þurfi að lúta henni. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hvaða hugmyndir séu uppi um í tilvikum skóla sem ekki nýtur þjónustusamnings og ekki nýtur opinbers fjárstuðnings, hvaða hugmyndir séu um möguleg skólagjöld, hvort við séum að búa til elítuskóla eða hvort þak sé á.