grunnskólar.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Það er nú svo að sveitarfélögum ber auðvitað skylda til þess að bjóða upp á skólaþjónustu og skólapláss fyrir öll þau börn sem búa í viðkomandi sveitarfélagi, þannig að sú staða getur komið upp að sveitarfélagið þurfi að vera tilbúið til þess að veita skólaþjónustu til jafnvel mikils fjölda barna sem búa í sveitarfélaginu en eru í skólaþjónustu í einkaskólum eða annars staðar. Þess vegna er sjálfsagt og eðlilegt að sveitarstjórnir komi mjög sterkt að skipulagi allrar skólaþjónustu í sínum sveitarfélögum.
En meginefni spurningar minnar áðan, sem mig langar að fá aðeins skýrara svar við frá hæstv. ráðherra, var að ef slíkt kæmi til, þ.e. að sveitarfélag hefði neitað einkareknum skóla um þjónustusamning eða um staðfestingu, skiptir eiginlega ekki máli hvort það er málefnalegt eða ekki, þá hefur ráðherra hér heimild til þess að veita slíkum skóla leyfi. Eru einhverjar reglur um það hvaða skólagjöldum slíkur skóli, sem ekki nýtur þjónustusamnings eða loforðs um opinberan fjárstuðning, mætti kalla eftir frá nemendum?