145. löggjafarþing — 109. fundur,  10. maí 2016.

upplýsingar um reikninga í skattaskjólum.

[13:53]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég tel að það hafi verið mikið gagn af því að þessi gögn voru gerð opinber eins og gert var í gær og hefði mátt gerast mun fyrr. Ríkisskattstjóri hefur gert það sem í hans valdi stendur til þess að krefjast afhendingar þessara gagna. Við höfum af því sameiginlega hagsmuni að gögnin komist til þar til bærra yfirvalda.

Ég hef ekki skýringar á því í sjálfu sér hvers vegna hlutfallslega mörg félög hafa verið stofnuð fyrir Íslendinga. En það sem við manni blasir er að íslensku bankarnir voru á sínum tíma mjög framtakssamir í sinni útrás og þar með talið í ráðgjöf um að stofna félög af þessu tagi.

Varðandi skattaskjólin almennt þá hefur alþjóðlega baráttan vegna þeirra snúist um tiltekna afmarkaða hluti. Hún hefur snúist um að berjast gegn peningaþvætti. Hún hefur snúist um að afnema leyndina og koma þannig í veg fyrir skattsvik. Um það snúast upplýsingaskiptasamningarnir og átak OECD og Íslendingar hafa verið framarlega meðal þjóða í því að gera slíka samninga og taka upp slíkar reglur, að uppræta leyndina. Um það hefur verkefnið fyrst og fremst snúist.

Hv. þingmaður spyr þá í framhaldinu: Eigum við ekki bara að banna slíka löggerninga? Hérna komum við einmitt að kjarna málsins. Það er bannað að svíkja undan skatti. Það er bannað að leyna eignarhaldi sínu. Peningaþvætti er bannað. Allt þetta er bannað að íslenskum lögum.

Af spurningu hv. þingmanns er hægt að ráða að verið sé að velta því upp hvort við eigum ekki að banna starfsemi á þessum svæðum yfir höfuð. Ég tel að það mundi lítill árangur nást ef Íslendingar ætluðu einir að stíga það skref án samstarfs við önnur ríki og að (Forseti hringir.) umræðan um viðskiptaþvinganir hljóti að snúa að þeim ríkjum sem neita að taka þátt í upplýsingaskiptasamningum.