145. löggjafarþing — 109. fundur,  10. maí 2016.

öryggi ferðamanna.

[15:06]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Herra forseti. Stórauknum ferðamannastraumi til landsins fylgir ábyrgð og skyldur stjórnvalda. Við þurfum bæði að hugsa til þess að ganga vel um landið og tryggja öryggi ferðamanna. Til þess þarf að stórauka fjárveitingar til löggæslu og samgöngumála eins og hefur komið hér fram og almennt til innviðauppbyggingar. Því miður endurspeglast það ekki í ríkisfjármálaáætlun til næstu fimm ára. Ákveðið ráðaleysi og aðgerðaleysi hefur ríkt þrátt fyrir orð hæstv. ráðherra í þessum málaflokki öllum saman. Við erum ekki að bregðast við sem skyldi í því að taka á móti þeim mikla fjölda ferðamanna sem hefur líka orðið til þess að á þekktum ferðamannastöðum hefur banaslysum á ferðamönnum fjölgað. (Gripið fram í.) Við þurfum að gera allt til þess að koma í veg fyrir slíkt. Þó að gripið hafi verið til ákveðinna aðgerða í þeim málum þurfum við að gera miklu betur þar.

Þjóðvegir landsins eru víða stórhættulegir ferðamönnum og þar eykst líka slysahætta. Samgönguáætlun endurspeglar ekki að við séum að taka okkur á í þeim efnum. Þar þarf fjármuni til. Þetta kallar allt á að þeir miklu fjármunir sem þessi grein skilar inn í landið nýtist í innviðauppbyggingu, það sé ekki endalaust ráðaleysi um hvernig eigi að fjármagna og hver beri ábyrgð á hverju. Hver ráðherra vísar á annan í þeim efnum í þessum málaflokki.

Ég minni rétt í lokin á tillögu sem ég er fyrsti flutningsmaður að, flyt hana ásamt þingmönnum úr öllum flokkum, um áhættumat í ferðamennsku þar sem óskað er eftir því að ríkislögreglustjóri geri áhættumat fyrir Ísland með tilliti til ferðamennsku og síðan verði kannað hvort setja þurfi sérstakar reglur um þau svæði sem (Forseti hringir.) hafna í efsta áhættuflokki. Þetta er í þriðja sinn sem þessi tillaga liggur fyrir þinginu og ég trúi því og vona að okkur takist að fá hana samþykkta og afgreidda því að hún er gott innlegg í allt þetta mál.