almennar íbúðir.
Hæstv. forseti. Ég kem hér upp til að lýsa ánægju minni með að málið skuli vera komið á þetta stig og við séum að ljúka því með atkvæðagreiðslu hér í dag. Þetta er búin að vera mikil vinna. Það kom fram á fundum nefndarinnar að skrifstofustjóri velferðarráðuneytisins sagði að aldrei hefði verið haft jafn mikið samráð um nokkurt mál og þetta. Menn voru svolítið að ýta á eftir málinu en ég held að tíminn sem hefur farið í þetta hafi gert að verkum að það er komið á þennan stað, að það eru allir sammála, sem er gríðarlega ánægjulegt. Ég held að við ættum að nýta það til framtíðar litið að hægt er að ná mikilli og víðtækri samstöðu á þingi og í nefndum um svona mikilvæg mál. Þetta er stórt mál og ég vona svo sannarlega að það muni leiða til þess sem því er ætlað að gera, að skapa leigumarkað þar sem fólk borgar 20–25% af ráðstöfunartekjum sínum. Það yrði stórsigur ef við næðum því. En við í Bjartri framtíð styðjum frumvarpið.