búvörulög o.fl.
Herra forseti. Kerfi offramleiðslu og útflutningsuppbóta var aflagt 1991 með fyrsta stóra búvörusamningnum. Það kerfi var gjaldþrota, bæði efnahagslega og pólitískt.
Ekki er hægt að horfa fram hjá því að með því að hætta að beina stuðningi ríkisins að því sem selst á innanlandsmarkaði — og færa það yfir í almennar greiðslur á grundvelli framleidds lítra af mjólk eða framleidds kílós af kjöti og greiðslu fyrir hvern ásettan grip óháð því hvort sú framleiðsla nýtist innan lands eða er flutt út — er í reynd verið að taka upp beinar útflutningsuppbætur. Í besta falli er hægt að tala um þær sem óbeinar þar sem menn hætta að gera greinarmun á þeim stuðningi sem fer til þess að framleiða fyrir landsmenn sjálfa og hinu sem flutt er út.
Þetta er að mínu mati það hættulegasta við þennan samning og er þó margt fleira í honum varhugavert. Ég ætla mér aldrei, á meðan blóðdropi rennur í æðum mér, að styðja það að menn leggi af stað með landbúnaðinn út í þær ofboðslegu ógöngur (Forseti hringir.) sem hann var í fyrir daga samningsins 1991 og gerð þjóðarsáttarinnar.