búvörulög o.fl.
Hæstv. forseti. Ég tók eftir því að hv. þingmaður talaði um ofurháa verndartolla og dettur í hug að spyrja hana: Miðað við hvað? Það eru t.d. verndartollar á landbúnaðarvörum í Evrópusambandið, bæði magn- og verðtollar. Miðað við hvað finnst þingmanninum verndartollar hingað til Íslands vera háir?
Í annan stað, hv. þingmaður nefndi grænmetið sem sérstakan útgangspunkt í því hversu vel tækist til þegar tollar væru lækkaðir. Tollalækkunin á grænmeti á sínum tíma, sem skilaði sér reyndar ekki í verði til neytenda nema að litlu leyti, hefur orðið til þess að setja grænmetisbændur „på plads“, ef ég má sletta, með leyfi forseta, vegna þess að þeim sem framleiða tómata, gúrkur og papriku gagnast sú tollaniðurfærsla. Samkeppnin kemur þeim til góða. En það hefur ekki stuðlað að aukningu framleiðslu grænmetis á Íslandi, þ.e. að úrvalið af íslensku grænmeti hafi aukist.
Mig langar þess vegna til að spyrja hv. þingmann hvað henni finnist helst að hafi orðið neytendum að gagni varðandi tollalækkun á grænmeti, sem hvorki hefur skilað sér í verði til neytenda nema að litlu leyti, né aukið úrval af því grænmeti sem framleitt er á Íslandi.