145. löggjafarþing — 111. fundur,  17. maí 2016.

búvörulög o.fl.

680. mál
[16:30]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Einhvern veginn finnst mér hv. þingmaður hafa misskilið það sem ég sagði áðan vegna þess að þegar ég spurði: miðað við hvað? var ég að vísa í viðmiðun við Evrópusambandið sjálft vegna þess að það kann ekki góðri lukku að stýra að fella niður tolla einhliða. Fyrir það fær maður ekki neitt, þ.e. landið sem slíkt. Ég tek undir það með hv. þingmanni að auðvitað vil ég að fluttir verði inn ostar með sæmilegu lagi, það er ekki málið, en sporin hræða og þær tollabreytingar sem gerðar hafa verið bæði á landbúnaðarvörum í litlum mæli og öðrum vörum hafa ekki skilað sér til neytenda.

Hvað varðar grænmetisbændur þá tek ég heils hugar undir það með hv. þingmanni að framleiðslan er til fyrirmyndar. Ég vildi samt ánýja við þingmanninn að tollabreytingin hefur samt sem áður ekki aukið fjölbreytni framleiðslunnar í landinu. Ef tollabreytingar lækka ekki vöruverð — þær hafa ekki lækkað vöruverð á öðru grænmeti en því sem er akkúrat undir þessu — (Forseti hringir.) og auka ekki fjölbreytni framleiðslunnar (Forseti hringir.) hlýtur maður að spyrja: Til hvers gerum við þetta þá?