145. löggjafarþing — 111. fundur,  17. maí 2016.

búvörulög o.fl.

680. mál
[17:42]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg):

Frú forseti. Ég ætla ekki að lengja mjög umræðu um þetta mál en finnst þó mikilvægt að nefna nokkur atriði. Í fyrsta lagi er hér um stórmál að ræða sem varðar framtíð íslensks landbúnaðar. Það er tilfinning mín að langflestir hv. þingmenn séu áhugasamir um framtíð íslensks landbúnaðar og vilji tryggja hana sem best. Því er það skoðun mín að betra hefði verið ef haft hefði verið meira samráð við gerð þessa samnings.

Vissulega kynnti fyrrverandi hæstv. ráðherra stöðu mála fyrir okkur, formönnum allra flokka, þegar samningsgerð var langt komin. En þegar verið er að móta stefnuna til lengri tíma í einum af grundvallaratvinnuvegum þjóðarinnar hefði ég talið að það samráð hefði mátt vera víðtækara. Beintengt því tel ég, sem margir hv. þingmenn hafa bent á í dag, að nauðsynlegt hefði verið, og nú hefur því verið svarað, að tollasamningurinn við ESB verði hér til umræðu í næstu viku.

Ég á þá von á því að þessi mál verði rædd í samhengi í þinginu því að hér er um að ræða framtíðarsýn fyrir íslenskan landbúnað. Þar mun tollasamningurinn hafa mikil áhrif, t.d. hvað varðar þá sem eru með minni búskap í svínarækt, þ.e. ekki endilega stóru búin en heldur fjölskyldubúin í svínarækt. Samningurinn mun líka hafa mikil áhrif á kjúklinga- og eggjabúskap.

Þetta er stefnumótandi mál sem skiptir miklu máli að við ræðum í samhengi og ræðum um í tengslum við framtíðarsýn okkar á landbúnaði og hvernig við sjáum fyrir okkur að Ísland geti sem best orðið sjálfu sér nógt þegar kemur að matvælaframleiðslu, hvert við viljum stefna, hvaða áhrif tollasamningurinn mun hafa á svínarækt og á kjúklinga- og eggjarækt og hvernig við viljum að þessar greinar landbúnaðarins þróist.

Það finnst mér mikilvægt að við ræðum í samhengi og að vinnunni hér í þinginu verði hagað þannig að við getum rætt þessi mál í samhengi því að þau snúa að því hvert við viljum fara með íslenskan landbúnað. Hér er verið að tala um stórar stefnumótandi ákvarðanir tíu ár fram í tímann.

Fyrir liggur að ýmislegt hefur gengið á í kringum gerð þessara samninga. Einnig er ljóst að ólík sjónarmið koma fram hjá kúabændum í þessu horni, sauðfjárbændum í hinu. Það eru mjög ólík sjónarmið þar á milli. Því er ljóst að hér eru dálítið ólíkir hagsmuni undir þegar við ræðum ólíkar greinar landbúnaðarins.

Hver er þá stóra myndin? Jú. Það er tvennt sem mig langar að nefna fyrir utan samhengið við tollasamninginn og samhengið við viðskipti okkar við aðrar þjóðir. Það er í fyrsta lagi útflutningurinn, útflutningsstuðningurinn og þær spurningar sem hann vekur um hvort við styðjum innlendan landbúnað til þess að flytja landbúnaðarafurðir úr landi eða hvort við styðjum innlendan landbúnað fyrst og fremst fyrir íslenska neytendur. Það er ákveðin pólitísk grundvallarspurning og snýst kannski ekki um það. Vissulega er það jákvætt ef hægt er að flytja út innlendar afurðir, gæðaafurðir. Það er hið besta mál. En rökstuðningurinn fyrir stuðningnum hefur hins vegar verið í þágu íslenskra neytenda, að það sé mikilvægt fyrir okkur sem búum hér í þessu landi að við höfum innlendan landbúnað. Þar ráði för bæði gæðasjónarmið og hollustusjónarmið.

Ég tel að þetta mál þurfi að fá ítarlega umræðu því að það er grundvallarbreyting frá þeirri stefnu sem verið hefur í hátt í 30 ár. Mér finnst þetta vera grundvallarspurning um það á hvaða forsendum við byggjum innlendan stuðning við landbúnað, við innlendan landbúnað.

Ég sagði í upphafi míns máls að mér þætti gríðarlega mikilvægt að við stæðum hér fyrir öflugum innlendum landbúnaði. Fyrir því eru fyrst og fremst umhverfissjónarmið út frá hinu breiða samhengi, þ.e. ég tel það gríðarlega mikilvægt umhverfis- og heilbrigðissjónarmið að íslenskur almenningur hafi aðgang að landbúnaðarafurðum sem framleiddar eru í nágrenni við okkur, sem ekki hafa ferðast langa leið með tilheyrandi loftslagsáhrifum til landsins.

Þannig tryggjum við líka heilbrigðissjónarmiðin sem eru mjög mikilvæg og þau þarf að ræða, bara svo ég nefni það í tengslum við tollasamninginn, því að við vitum vel að sótt er að þeim sjónarmiðum á alþjóðavettvangi sem við höfum hingað til haldið uppi um að banna innflutning á hráu kjöti. Það vekur líka spurningar. Það er þvert á í raun og veru ráðgjöf þeirra sem gerst til þekkja sem hér starfa innan landbúnaðarins og innan dýraheilbrigðisgeirans um að mikilvægt sé að það bann haldi.

En umhverfisáhrifin eru tvímælalaust mikilvæg og ég vil nota tækifærið og vekja athygli á svari sem barst við fyrirspurn frá hv. þm. Svandísi Svavarsdóttur um umhverfisáhrif búvörusamninga frá hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra þar sem fram kemur að ekki hafi verið beitt aðferðum vistsporamælinga við mat á umhverfisáhrifum og umhverfismarkmiðum búvörusamninga eða öðrum viðurkenndum aðferðum á því sviði, enda hafi ekki farið fram mat á umhverfisáhrifum.

Síðan er rætt að margt fari saman við þau almennu markmið sem við höfum undirgengist í Parísarsamkomulaginu, svo sem ákvæðum um að styðja við gróðurvernd og landgræðslu. Hins vegar kemur líka fram að þessar mælingar hafi ekki farið fram. Komið hefur fram hjá fyrrverandi hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í fyrirspurnum eða umræðum sem við áttum um þetta mál hér í þinginu að búvörusamningarnir hafa ekki verið settir í samband við loftslagsmarkmiðin. Þó að vissulega skipti landbúnaðarmál gríðarlegu máli þá hafa búvörusamningarnir ekki verið settir í það sérstaka samhengi.

Í ljósi þess að við erum hér með samning og breytingu á lögum sem ætlað er að standa til lengri tíma þá furða ég mig á því af hverju það hefur ekki verið gert. Af hverju hefur ekki farið fram meiri vinna við það hér? Hér segir í svarinu, með leyfi frú forseta, að að sjálfsögðu þurfi samstarf fjölmargra aðila og í raun samfélagsins alls til að markmið Parísarsamkomulagsins náist.

Einmitt, frú forseti. Það er nefnilega einmitt það og þar skiptir landbúnaðurinn máli. Ekki einn og sér, að sjálfsögðu ekki. Við þurfum líka að eiga þetta samtal við sjávarútveginn og við þurfum að eiga það við iðnaðinn í landinu og við þurfum að eiga það í kringum samgöngumál í landinu. Það sem ég furða mig á núna er að þegar verið er að marka stefnu til áratugar, langt fram í tímann, séu þessi markmið ekki meira áberandi. Um það snýst þetta ekki síst, þ.e. hvernig við ætlum að mæta framtíðinni hér á landi þegar kemur að matvælaframleiðslu, hvernig við ætlum að standa fyrir matvælaframleiðslu út frá sjónarmiðum matvælaöryggis og fæðuöryggis fyrir íbúa á þessu landi og að við getum lagt okkar af mörkum til að ná þessum markmiðum, loftslagsmarkmiðunum.

Þetta ræði ég að minnsta kosti við alla þá bændur sem ég hitti á ferðum mínum um landið og þeir eru alveg tilbúnir í það samtal. En ég sé þess ekki stað í þessu samkomulagi og því þarf að breyta.

Ég velti því upp hér hvort að ekki mætti annars vegar taka það til sérstakrar skoðunar í þinglegri meðferð á breytingum á frumvarpinu hvernig sé hægt að taka þessi mál inn í búvörusamninga. Það liggur fyrir að þarna eru endurskoðunarákvæði og annað slíkt. Það má líka ræða hvort ekki megi gefa sér tíma í það. Nú liggur fyrir að við verðum hér fram á haustið og lögin eiga fyrst að taka gildi 1. janúar 2017 samkvæmt gildistökuákvæði. Ég mundi segja að það þyrfti að skoða einstakar greinar út frá því sem hér hefur komið fram í umræðum sem eru mismunandi staddar og það er mismikil gagnrýni á einstaka hluta þessara samninga. Við vitum að t.d. garðyrkjusamningurinn er nokkurn veginn óbreyttur og hefur verið talinn tiltölulega vel heppnaður. Síðan höfum við heyrt mikla gagnrýni frá sauðfjárbændum, svo dæmi sé tekið. Það er mikill munur á milli svæða þegar það er skoðað. Hins vegar náðust fram ákveðnar breytingar á mjólkursamningnum og urðu þar ákveðnar breytingar á að kröfu kúabænda.

Fyrir liggur að gagnrýnin er mismikil. Það þarf að fara yfir einstaka geira þessa samnings en það þarf líka að skoða heildina út frá loftslagsmarkmiðunum. Ég held að þarna sé dauðafæri, svo ég segi það við hæstv. ráðherra, að setja mark sitt á þetta frumvarp og þessa samninga út frá þeim markmiðum sem við höfum þegar undirgengist. Mér fannst mikilvægt að það skyldi koma upp hér því að margir eru búnir að segja margt um samningana en loftslagsmarkmiðin hafa meira verið í formi aukasetninga. Þau eiga auðvitað að vera aðalmarkmið okkar í allri lagasetningu sem við setjum á þessu þingi.

Ég er búin að vera að spyrja að því hvenær fullgilda eigi Parísarsamkomulagið og hef fengið þau svör að það standi til að gera það sem fyrst. Ég vona að það verði á þessu þingi. Við eigum auðvitað að vera búin að taka það inn í alla okkar stefnumótun. Hér á að vera að marka stefnu í landbúnaði á Íslandi til næstu tíu ára. Þetta verður að vera hluti af því. Það þarf að beita þar viðurkenndum aðferðum á borð við vistsporsmælingar, umhverfismat og annað slíkt.

Ég leyfi mér að segja það, ég hef að sjálfsögðu ekki hitt hvern einasta bónda á landinu, en þeir sem ég hef talað við heyri ég að eru tilbúnir í þetta. Þeir eru tilbúnir að taka þetta samtal því að við vitum að loftslagsáhrifin af því að reka hér okkar eigin landbúnað eru líka mikilvæg í heild sinni, að við séum ekki hér að flytja inn matvæli sem fara hálfa leiðina í kringum hnöttinn. Það ætti að vera markmið okkar að við þurfum þess ekki. Það er gríðarmikilvægt loftslagsmál og við eigum að geta sameinast um það þvert á alla flokka.

Ég svo sem ætla ekki að lengja umræðuna. Ég vil bara segja að ég tel að þetta þurfi að skoða sérstaklega. Þetta þarf að skoða í samhengi við þau markmið sem við höfum þegar undirgengist. Og þó að það taki lengri tíma í meðförum þingsins en menn hafa vonast eftir þá skiptir það máli ef við ætlum að horfa fram í tímann að vanda það sem lengi á að standa og fara svo yfir þá gagnrýni sem hér hefur komið fram mismunandi ólíka geira þessa samnings. Það skiptir máli. Ég nefni þar sérstaklega sauðfjársamninginn annars vegar og hins vegar tollasamninginn og áhrif hans á svínaræktun og eggja- og kjúklingabúskap. Það er ýmislegt þarna undir sem þarf skoðunar við í þinginu.