búvörulög o.fl.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta svar. Ég er ekki að leitast eftir því að hann sé sérfræðingur á sviðinu og mér fannst svar hans algjörlega boðlegt að því leyti að við erum svolítið týnd þegar kemur að því að fara að benda á leiðir. Það er mjög auðvelt að gagnrýna og kasta grjóti og segja: Þetta á ekki að vera svona heldur einhvern veginn öðruvísi.
Ég er að mörgu leyti sammála sjónarmiðum sem fram koma í grein sem hv. þingmaður vitnaði í í ræðu sinni. Þess vegna vil ég taka fram að undir forustu sauðfjárbænda í samningagerðinni, eins og ég þekki til hennar, var haldið áfram á þeirri vegferð að tala um landbætur, gæðastýringu og ábyrga notkun lands, þannig að ég haldi því nú til haga. Ég geri engar athugasemdir við það hvernig unnið var að stefnumörkun búvörusamninga og varðandi samráð. Mér fannst samtal milli stjórnvalda og bænda bara í eðlilegum farvegi, en ég er hins vegar talsmaður þess að ábyrgðin á framkvæmd landbúnaðarstefnunnar hér eftir þurfi meiri og breiðari grunn undir. Um það er ég sammála hv. þingmanni.
Hv. þingmaður nefndi sérstaklega í ræðu sinni að stór hluti sauðfjárframleiðslunnar væri fluttur úr landi og að við hefðum ekkert við hana að gera. Því langar mig að spyrja hv. þingmann: Er hann að boða það að við skerum niður sauðfé, sauðfjárstofninn í landinu, og snúum okkur eingöngu að því að framleiða fyrir innanlandsmarkað?