búvörulög o.fl.
Frú forseti. Það er nú skaði að hv. 1. þm. Norðaust. sé genginn úr salnum, ég ætla að lýsa þeirri von minni að hann eigi eftir að taka til máls í þessari umræðu því að mér finnst það með ólíkindum ef 1. þm. Norðaust., þess mikla landbúnaðarhéraðs, ætlar ekki að blanda sér í umræðuna, fyrir utan hvað þar fer vaskur maður.
Í fyrsta lagi vil ég segja að það er margt sem maður hefði viljað hafa meiri tíma til að fjalla um, þar á meðal umhverfishliðina og sambúð landbúnaðarins við náttúruna. Ég kom aðeins inn á það í ræðu minni fyrr í dag, en þar finnst mér að við þyrftum að vera komin lengra einhvern veginn — Og oft kemur góður þá getið er, hv. þm. Hjálmar Bogi Hafliðason. Ég minni á í því sambandi ályktun sem náttúruverndarsamtök sendu frá sér, þ.e. Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands og Skógræktarfélag Íslands, í febrúarmánuði síðastliðnum einmitt af þessu tilefni, vegna búvörusamninganna, þar sem þau benda réttilega á mikilvægi þess að landbúnaðurinn þróist í góðri sátt við landið og byggi skilyrðislaust á sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda, sem eru sjónarmið sem við eigum öll að geta tekið undir, og að komið verði í veg fyrir beit á örfoka landi.
Ég hef áhyggjur af þessum samningi m.a. í þessu samhengi vegna þess að ef verður framleiðsluaukning, svo maður segi nú ekki framleiðslusprenging t.d. í sauðfjárræktinni og snöggfjölgun sauðfjár, og það verður ekki einu sinni tryggt að henni verði frekar stýrt á þau svæði þar sem ástand beitarlands er best, gæti það leitt til verulegs núnings. Mér sýnist samningurinn meingallaður að þessu leyti.
Í öðru lagi vil ég koma aðeins inn á það sem hv. þm. Haraldur Benediktsson nefndi hér ágætlega og réttilega að þegar menn gagnrýna það sem áformað er í þessum samningi um fyrirkomulag stuðningsgreiðslnanna er minna um tillögur. Allt hefur þetta sína kosti og sína galla. Öll svona stuðnings- og stýrikerfi eru því marki brennd að á þeim eru agnúar. Menn eru alltaf að reyna að finna leiðir fram hjá þeim og bæta og bæta. Öll kvótakerfi og öll takmörkun á aðgangi að verðmætum, auðlindum eða hlunnindum hefur alltaf í för með sér þá hættu að aðgangurinn taki á sig verðmiða.
En hvað er hægt að gera til að bregðast við þessu? Hv. þm. Haraldur Benediktsson óskaði eftir hugmyndum. Ég hef oft og lengi hugsað um þetta og get alveg komið með ákveðnar hugmyndir sem ég tel að gætu að verulegu leyti sniðið af þessa annmarka. Ég nefni einfaldlega búsetustuðning, þ.e. að lögbýli í sveit með einhver tiltekin búskaparumsvif hafi tiltekinn grunnstuðning. Ef menn sitja jörðina, búa sannarlega á henni og þar eru þau skilgreindu búskaparumsvif eða önnur umsvif sem við viljum hlúa að, þess vegna menningartengd ferðaþjónusta eða eitthvað tengt landbúnaði og landnýtingu, skógrækt eða hvað það nú er, ef slík jörð hefur skilgreindan stuðning sem er óframseljanlegur og fylgir jörðinni og er þeirrar náttúru að hann er aðeins nýtanlegur ef búið er á jörðinni, sofnar ef jörðin fer úr ábúð, vaknar aftur ef hún byggist upp á nýjan leik, þá er enginn þröskuldur til að kaupa sig yfir vegna þess að rétturinn tilheyrir jörðinni og verður ekki af henni seldur. Jörðin sem slík gæti orðið eitthvað verðmætari í viðskiptum með slíkan grunnrétt, en það yrði ekkert í líkingu við beinan framseljanlegan framleiðslurétt. Jafnvel mætti hugsa sér sjálft stuðningskerfið í formi greiðslna til framleiðslu tvískipt þannig að viss grunnstuðningur væri jarðarbundinn og óframseljanlegur frá jörðunum. Síðan gæti aðlögun eftir atvikum átt sér stað í einhverri hreyfingu á viðbótarstuðningi sem væri þar fyrir ofan.
Það eru ýmsar slíkar leiðir færar sem mundu sníða marga agnúa af þessu. Sama ætti auðvitað við um sjávarútveginn. Ef einhver grunnhluti veiðiheimildanna hefði verið byggðatengdur í byrjun, tengdur byggðarlögunum, landverkafólkinu en ekki bara útgerðinni, þá hefði margt þróast öðruvísi í þeim efnum.
Að lokum vil ég nota örfáar sekúndur sem ég á eftir til að inna hæstv. landbúnaðarráðherra eftir einu. Það er mismunurinn sem er á innlausnarákvæðum, annars vegar framleiðsluréttar í sauðfjárrækt og hins vegar mjólk. Það vekur athygli mína að ef sauðfjárbændur vilja láta frá sér greiðslumark sitt þá eiga þeir rétt á innlausn frá ríkinu og eins árs ígildi beingreiðslna. Ef mjólkurbændur ætla hins vegar að gera þetta þá eiga þeir rétt á tveggja ára ígildi beingreiðslna. Hverju sætir þessi mismunur? Mér dugar ekki að verðið í viðskiptum hafi verið ójafnt vegna þess að þegar kemur að afkomuhlið bændanna þá má leggja þetta alveg að jöfnu. (Forseti hringir.) Ég skil ekki svona lagað, að sauðfjárræktin skuli alls staðar í samningunum draga hið styttra strá. Var ríkisvaldið (Forseti hringir.) eða voru samningamenn bænda steinsofandi þegar verið var að ganga frá sauðfjárhluta þessara samninga?