145. löggjafarþing — 111. fundur,  17. maí 2016.

búvörulög o.fl.

680. mál
[19:26]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Frú forseti. Mig langar í seinni ræðu minni í þessu máli aðeins að ræða samspil búvörusamninga og neytenda. Sjónarmið í þeim efnum togast vissulega á og þess vegna þykir mér mjög mikilvægt að haft sé sem mest samráð og samvinna við gerð búvörusamninga yfir höfuð. Á það hefur skort í þessu tilfelli. Ekki voru kallaðir til aðilar fyrir hönd neytenda né fyrir hönd verkalýðshreyfingarinnar. Það þarf að draga sem flest að borðinu til að hægt sé að skapa einhverja sátt í þessu máli því að hætt er við að það verði meiri og meiri togstreita á milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis. Það þarf skilning gagnvart því að brýnt sé að tryggja matvælaöryggi í landinu og búsetu á sem flestum svæðum, þar á meðal búsetu á jörðum til landbúnaðarframleiðslu, hversu mikilvægt það er fyrir okkur sem eyþjóð að tryggja það, líka upp á sjálfbærni og umhverfismál, að við séum ekki að flytja matvæli langar leiðir með tilheyrandi mengun og vistsporum í þeim efnum.

Einhvern veginn hefur ekki verið horft á þetta þannig. Ég hef miklar áhyggjur af því að sífellt verði erfiðara að ná sátt, bæði vegna þess að framleiðslan miðast ekki við innanlandsneyslu, sem mér finnst að hún þurfi fyrst og fremst að tengjast, og vegna þess að það að fara frá framleiðslustýringu — það stefnir í offramleiðslu með tilheyrandi afleiðingum. Ég vil ekki sjá það sem mun gerast í framhaldinu þegar það springur allt framan í neytendur og ríki á einn eða annan hátt. Svo er það sú samþjöppun sem hætta er á að verði í búvörusamningunum eins og þeir eru lagðir upp, að fara eigi út úr kvótakerfi í báðum greinum búvörusamningsins, mjólkur- og sauðfjárræktarhlutanum, sem þýðir að hefðbundin fjölskyldubú munu eiga mjög á brattann að sækja og það verður mjög erfitt að standa vörð um fjölskyldubúin.

Ég held að það sem íslenskir neytendur hafa verið tilbúnir til þess að nýta hluta skattfjár almennings í í stuðningi við íslenskan landbúnað sé einmitt þetta, búseta vítt og breitt um landið. Það nýtist líka neytendum, kemur fram í verði til neytenda. Nú geta neytendur ekki greint hvort stuðningur ríkisins fari með beinum eða óbeinum hætti í markaðsátak á kindakjöti erlendis. Mér heyrist ekki á neinum sem hér hefur talað að menn vilji sjá að aftur verði settar á útflutningsbætur eins og var fyrir þjóðarsáttarsamningana 1991. Þess vegna er verið að fara aftur til fortíðar og fara í einhverja verkfærakistu sem var búið að leggja fyrir löngu síðan vegna þess að þetta reyndist hvorki greininni né neytendum vel og var illa farið með skattfé almennings.

Þetta kann að stangast eitthvað á vegna þess að ég hef talað fyrir því að gera stórfelldar breytingar á kvótakerfi í sjávarútvegi. Þær breytingar sem var talað fyrir á síðasta kjörtímabili og lágu fyrir í samningi áttu að leiða til þess að trappað yrði niður á 20 árum. Hér er verið að tala um að afnema algjörlega framleiðslustýringu, sem innifelur þá kvótakerfi í þessum greinum landbúnaðar, á tíu árum og ganga mjög hart að ákveðnum hluta sauðfjárræktar á jaðarsvæðum með skerðingu á beingreiðslu, sem hætta er á að leiði til þess að bændur (Forseti hringir.) flosni upp af búum sínum. Það er ömurleg niðurstaða.