heimild til útboðs vegna nýrrar Vestmannaeyjaferju.
Virðulegi forseti. Mér er ákveðinn vandi á höndum með að svara þessu vegna þess að samgönguáætlunin er í eðli sínu bara spá eða áætlun, stefnumótun um það hvernig við hyggjumst forgangsraða einstaka verkefnum og kostnaðaráætlun um einstaka verkþætti. Það sem síðan á endanum ræður því hvað af því sem er í samgönguáætlun kemst til framkvæmda og í hvaða röð eru fjárlögin. Það sem ég vakti athygli á var að það er rými fyrir þessari ferju í langtímaáætlun okkar og þar með í samgönguáætlun. Við höfum lifað við það mjög lengi að það er ekki rými fyrir samgönguáætlun í langtímaáætlun ríkisins. Við erum yfirleitt með útbólgna samgönguáætlun samþykkta í þinginu sem við þurfum einhvern veginn að aðlaga okkur að í ríkisfjármálum í kjölfarið. Að þessu sögðu þá er það rétt sem hv. þingmaður nefndi að ekki er gert ráð fyrir því að ferjan ryðji einhverju öðru frá.
Mér finnst líka mikilvægt að halda því til haga að við vitum að það mun þurfa að gera úrbætur í höfninni. Höfn og skip voru alltaf hugsuð sem ein heild í þessu máli. Við höfum verið á eftir áætlun með að klára höfnina. Það hefur reynst okkur mjög þungt verkfræðilegt úrlausnarefni undanfarin ár. Við höfum sett mun meiri fjármuni í að halda höfninni opinni en ætlað var og við þurfum að leita allra leiða til þess að búa höfnina þannig úr garði að hún geti tekið við skipi og haldið samgöngum við Vestmannaeyjar opnum. (Forseti hringir.) Við megum ekki láta útboð ferjunnar með nokkrum hætti skyggja á möguleika okkar til þess að gera úrbætur í höfninni. Þetta er verkefni sem verður að skoðast sem ein heild.