145. löggjafarþing — 112. fundur,  18. maí 2016.

heimild til útboðs vegna nýrrar Vestmannaeyjaferju.

763. mál
[16:35]
Horfa

Kristján L. Möller (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég fagna því sem hæstv. fjármálaráðherra segir að verði það þannig að við þurfum að byggja nýjan Herjólf fyrir ríkisfé án þjónustusamnings, ef það æxlast eins og gerðist 2008, muni það ekki ryðja út, eins og hæstv. fjármálaráðherra sagði, öðrum samgönguframkvæmdum. Vissulega er það hárrétt að samgönguáætlun er stefnumótandi áætlun, langtímaáætlunin og svo stutta áætlunin, sem tekur mið af niðurstöðu fjárlaga. Svoleiðis hefur það alltaf verið. Það var einmitt þess vegna sem ég spurði þessarar spurningar. Ef við þurfum að fara hefðbundna ríkisfjármálaleið við að byggja ferjuna með fjárlögum þeirra ára til að borga ferjuna, byggingarkostnaðinn, þá hefur það verið staðfest nú að það mun ekki minnka fé til annarra samgönguframkvæmda. Því fagna ég vegna þess að það var akkúrat það sem ég var að spyrja eftir. Það gerist þá ekki þegar er verið að setja saman fjárlög og tekið er tillit til ýmissa þátta; hvað munum við hafa í afgang, hver er þenslan í landinu og þensluáhrif o.s.frv., að menn grípi til þess eins og oft hefur verið gert að skera niður fé til annarra samgönguframkvæmda eða samgönguframkvæmda til að stoppa upp í eitthvert gat eða ná einhverjum markmiðum ríkisstjórnar. En hér hefur það komið skýrt fram og ég fagna því mjög vegna þess að ég óttaðist að hitt yrði raunin, en nú höfum við það sem sagt staðfest. Þá segjum við bara: Áfram veginn, eða áfram sjóinn.