145. löggjafarþing — 112. fundur,  18. maí 2016.

heimild til útboðs vegna nýrrar Vestmannaeyjaferju.

763. mál
[17:26]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Frú forseti. Þetta mál er þannig vaxið að ég hef mikinn skilning á því að uppi séu ýmis sjónarmið um það hvernig verður best staðið að því að bæta samgöngur milli lands og Eyja. Við höfum fyrir margt löngu mótað þá stefnu, valið þá leið sem hér er fylgt eftir. Eins og ég vék að í fyrri ræðu minni þá var ávallt litið svo á að höfn og skip væru nátengd atriði þannig að við veðjuðum á Landeyjahöfn sem bestu leiðina til þess að stytta samgöngur og bæta til Vestmannaeyja og við gætum með þeim hætti fjölgað ferðum, stytt samgöngurnar í tíma og valið á sama tíma á vissan hátt öruggari leið en þá sem við höfum haft, þá er ég ekki síst að vísa til tíðni ferða. En við höfum verið að glíma við náttúruöflin og það hafa orðið frátafir vegna aðstæðna í Landeyjahöfn sem okkar færustu sérfræðingar eru að vinna á. Sú vinna heldur áfram, en við getum ekki beðið lengur með að klára þann þátt málsins sem snýr að skipinu. Þess vegna kem ég með þetta mál inn í þingið til þess að tryggja að við getum farið í útboðið. Fullnaðarhönnun er lokið. Þetta skip ristir mun grynnra en ferjan sem við höfum í dag og ætti þess vegna að vera miklu betur til þess fallið að eiga við þær aðstæður sem eru í höfninni, en við þurfum að treysta á okkar færasta fólk, okkar sérfræðinga, til að halda áfram vel á málum þannig að við fáum hámarksnýtingu á þessa fjárfestingu á sama tíma og við bætum samgöngurnar.

Mér finnst það mikið fagnaðarefni að málið sé komið á þetta stig. Ég vonast til að málið verði afgreitt hratt og örugglega í þinginu, en ég hvet til þess að það verði engu að síður skoðað mjög vel. Ég veit að þingnefndin sem fær málið hefur nýlega verið að skoða það sérstaklega og kallað til sín alla hlutaðeigandi og ætti þess vegna að vera í ágætisfærum að afgreiða málið tiltölulega hratt. Svo verður það í framhaldinu framkvæmdaratriði eins og ég vék að í fyrri ræðu minni að bjóða skipið út með þeim hætti sem hér er boðað og ýta málinu áfram. Við skulum svo vona að við fáum nýtt skip í gagnið sem allra, allra fyrst.