145. löggjafarþing — 112. fundur,  18. maí 2016.

ríkisendurskoðandi og endurskoðun ríkisreikninga.

112. mál
[17:33]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Birgir Ármannsson) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um frumvarp til laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Frumvarpið hefur verið til meðferðar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í vetur en fékk líka nokkra umfjöllun í nefndinni á síðasta þingi. Frumvarpið var endurflutt óbreytt nú í haust og við vinnu nefndarinnar var m.a. stuðst við umsagnir frá síðasta þingi og eins voru gestakomur sem reifaðar eru í nefndarálitinu.

Um málið má segja að í kjölfar vinnu sem átt hefur sér stað á vegum þingsins um aukið eftirlitshlutverk þingsins með framkvæmdarvaldinu komu fram tillögur um endurskoðun á lögum um Ríkisendurskoðun og var frumvarpið flutt af forsætisnefnd á grundvelli þess starfs.

Í nefndarálitinu er farið nokkrum orðum um forsögu málsins og ætla ég ekki að rekja það nánar en vil þó drepa á nokkur atriði sem nefndinni þótti mikilvæg og tók til sérstakrar umfjöllunar í sínum störfum.

Fyrst er þess að geta að með frumvarpinu er ætlunin að undirstrika stöðu ríkisendurskoðanda og sjálfstæði stofnunarinnar. Það er áréttað að ríkisendurskoðandi starfi á vegum Alþingis og sé trúnaðarmaður þess við endurskoðun og eftirlit með fjármálum og rekstri ríkisins.

Varðandi stöðu ríkisendurskoðanda er gert ráð fyrir að ríkisendurskoðandi verði ekki lengur ráðinn til starfa af forsætisnefnd heldur verði hann kjörinn af þinginu með sama hætti og umboðsmaður Alþingis.

Þá er í frumvarpinu gert ráð fyrir því að komi til þess að tillögur komi fram um að víkja ríkisendurskoðanda frá, þurfi til þess 2/3 hluta þingmanna. Eins og gefur að skilja þjónar sú breyting þeim tilgangi að styrkja sjálfstæði ríkisendurskoðanda gagnvart þinginu enda leiðir það auðvitað af eðli embættisins eða starfsins að um niðurstöður þess getur skapast pólitískur ágreiningur. Þess vegna telur nefndin eðlilegt að fara að þeirri tillögu sem fram kom í frumvarpi forsætisnefndar að styrkja stöðu ríkisendurskoðanda að þessu leyti.

Eins tekur nefndin undir þau atriði frumvarpsins er lúta að starfstíma ríkisendurskoðanda. Gert er ráð fyrir að kosningin sé til sex ára í senn og heimilt verði að endurkjósa ríkisendurskoðanda einu sinni þannig að samanlagt geti starfstími hans í embætti verið tólf ár.

Nokkuð var fjallað um hæfisskilyrði ríkisendurskoðanda í frumvarpinu. Í frumvarpinu eins og það var lagt fram var gerð sú krafa að ríkisendurskoðandi skyldi hafa löggildingu sem endurskoðandi. Þetta atriði var töluvert rætt innan nefndarinnar. Ríkisendurskoðandi er forstöðumaður stofnunar sem hefur m.a. með höndum endurskoðun ríkisreikninga. Fram komu þau sjónarmið að það gæti verið eðlilegt að líta til annarra atriða en löggildingar sem endurskoðanda þegar valið væri í starfið. Önnur reynsla, stjórnunarreynsla og þekking á stjórnsýslunni, væri líka mikilvæg í þessu. Var það niðurstaða nefndarinnar að fella út kröfuna um löggildingu í þessu efni en auðvitað vísað til þess að þeir starfsmenn embættisins sem fara með endurskoðun reikninga hefðu slíka löggildingu. Hins vegar væri nauðsynlegt að horfa heildstætt til verkefna ríkisendurskoðanda þegar hæfisskilyrðin væru mótuð. Leggur nefndin því til að í staðinn fyrir skilyrðið um löggildingu sé kveðið á um að ríkisendurskoðandi hafi þekkingu á reikningsskilum og ríkisrekstri auk stjórnunarreynslu. Þetta þýðir að þeir sem hafa löggildingu sem endurskoðendur koma auðvitað sterklega til greina en heimilt er að líta til annarra þátta líka.

Við í nefndinni fjölluðum einnig um starfssvið ríkisendurskoðanda. Til áréttingar leggjum við til að fært verði inn í textann atriði sem ekki var í upprunalegu frumvarpi en er í núgildandi lögum þar sem kveðið er á um að ríkisendurskoðandi geti verið þingnefndum til aðstoðar við störf er varða fjárhagsmálefni ríkisins. Það má segja um þetta atriði að þau sjónarmið komu fram að óþarfi væri að tilgreina þetta sérstaklega vegna þess að það leiddi af öðrum atriðum lagatextans. En nefndinni þótti rétt að árétta þetta.

Við fjölluðum í nefndinni töluvert um með hvaða hætti skýrslubeiðnir frá Alþingi til ríkisendurskoðanda gætu borið að. Í 17. gr. frumvarpsins er lagt til að forsætisnefnd Alþingis geti ýmist að eigin frumvarpi eða samkvæmt beiðni þingnefnda eða þingflokka farið fram á að ríkisendurskoðandi taki saman skýrslu um einstök mál eða málaflokka sem falla undir starfssvið hans. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd leggur til þá breytingu að þetta verkefni verði hjá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd en ekki forsætisnefnd vegna þeirrar stöðu sem stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur við að sinna eftirlitshlutverki af hálfu þingsins.

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd verður þó ekki eina leiðin fyrir þingið til þess að óska eftir skýrslum frá ríkisendurskoðun heldur er einnig kveðið á um það að hægt sé að biðja um skýrslu með sama hætti og þingmenn geta nú beðið ráðherra um skýrslu um tiltekin málefni. Það gerist þá með þeim hætti að níu þingmenn geta tekið sig saman um að óska eftir slíkri skýrslu og það er síðan afgreitt í þingsal með atkvæðagreiðslu án umræðu. Í frumvarpinu, eins og hér segir, var gert ráð fyrir því að þingflokkar eða þingnefndir gætu beðið um slíka skýrslu en nefndarmönnum þótti fara betur á því að þetta væri hægt að gera án aðkomu þingnefnda eða þingflokka. Það er þó auðvitað með þeim skilyrðum að það þarf níu þingmenn til og það þarf samþykki í þingsal til að skýrslubeiðnin berist. Þetta breytir þó ekki því sem kemur skýrt fram í frumvarpinu og er áréttað í nefndarálitinu að ríkisendurskoðandi er sjálfstæður í störfum sínum og í sjálfu sér óháður fyrirmælum frá þinginu. Þannig að ríkisendurskoðandi tekur alltaf afstöðu til þessara beiðna frá þinginu með hvaða hætti svo sem þær berast.

Í umfjöllun nefndarinnar var nokkuð rætt um hvernig rétt væri að standa að kynningu á skýrslum ríkisendurskoðanda. Innan nefndarinnar komu upp tillögur um að sami háttur væri hafður á og t.d. í Noregi þar sem fyrsta kynning á niðurstöðum ríkisendurskoðunar fer fram fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Nefndarmenn náðu ekki saman um að gera slíkt að tillögu sinni. Þetta var umdeilt atriði. Menn töldu að það gæti hamlað eða tafið kynningu á niðurstöðum Ríkisendurskoðunar, ekki síst ef þingið er ekki að störfum. Hins vegar felst í nefndarálitinu ráðagerð um að leitast verði við í störfum nefndarinnar að funda með ríkisendurskoðanda eins fljótt og auðið er eftir að skýrsla liggur fyrir þannig að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd geti þar með tekið þátt í umræðum um efni skýrslunnar svo til frá upphafi.

Í nefndarálitinu eru nokkrar vangaveltur um sérstakt hæfi ríkisendurskoðanda. Frumvarpið felur í sér skýrari reglur um hvernig fara beri með það ef ríkisendurskoðandi eða starfsmenn hans verða vanhæfir. Ríkisendurskoðun er auðvitað engum háð í störfum sínum og mikilvægt að árétta það. Ef sú staða kemur upp að ríkisendurskoðandi eða starfsmaður er vanhæfur þá er gert ráð fyrir því að öðrum verði falið verkið og í tilviki ríkisendurskoðanda er gert ráð fyrir því að unnt sé að setja sérstakan ríkisendurskoðanda til meðferðar sérstaks máls komi upp slíkt vanhæfi kjörins ríkisendurskoðanda.

Í frumvarpinu er gert ráð fyrir þeirri breytingu varðandi starfskjör ríkisendurskoðanda að laun og starfskjör ráðist af ákvörðun forsætisnefndar með sama hætti og laun umboðsmanns Alþingis og miðað verði við laun hæstaréttardómara. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu eftir nokkrar vangaveltur að rétt væri að fela kjararáði þetta hlutverk. Kjararáð hefur það með höndum í dag og í raun er það þannig að kjararáð tekur ákvarðanir sem varða laun og starfskjör æðstu embættismanna allra þriggja greina ríkisvaldsins. Nefndarmönnum þótti ekki tilefni til þess að hafa annan hátt á varðandi ríkisendurskoðanda og því gerir nefndin breytingartillögu frá texta frumvarpsins.

Meginverkefni ríkisendurskoðanda snúa að endurskoðun og eftirfylgd varðandi fjárhagsmálefni ríkisins en Ríkisendurskoðun hefur líka hlutverki að gegna varðandi svokallaða stjórnsýsluendurskoðun. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir breytingum á framsetningu þess ákvæðis sem varðar stjórnsýsluendurskoðun. Það varð nefndarmönnum tilefni til umræðu um það hvar mörkin væru milli stjórnsýsluendurskoðunar og síðan einhvers sem stendur nær því að vera einhvers konar stefnumörkun á sviði sem í sjálfu sér má telja stjórnmálalegs eðlis.

Nefndin gerir engar breytingartillögur að þessu leyti en áréttar að ríkisendurskoðun hefur auðvitað ekki það hlutverk að leggja fram stefnumótun á sviði sem heyrir í rauninni undir stjórnmálasviðið. En stjórnsýsluendurskoðun getur hins vegar tekið til þess hvernig best verði stuðlað að hagkvæmum, skilvirkum og árangursríkum rekstri. Eins og ég segi, þrátt fyrir nokkrar umræður um þetta hlutverk varð ekki niðurstaðan að leggja til breytingu hvað þetta varðar.

Í nefndarálitinu er líka nokkur umfjöllun um skörun á verkefnum Ríkisendurskoðunar við önnur embætti, t.d. umboðsmanns Alþingis. Við leggjum áherslu á að Ríkisendurskoðun hafi það hlutverk sem snýr að því að fylgjast með framkvæmd fjárlaga, fylgjast með fjárhagsmálefnum ríkisins, fylgjast með því að ríkisreksturinn sé í sem hagkvæmustum farvegi. Það sé hins vegar ekki hlutverk Ríkisendurskoðunar að skera úr um lögfræðileg álitamál sem eigi þá frekar heima undir starfssvið umboðsmanns eða dómstóla og er nokkur umfjöllun um það. Nú er það auðvitað svo að Ríkisendurskoðun þarf auðvitað að taka afstöðu til ákveðinna atriða í þessu sambandi. Það er að einhverju leyti óhjákvæmilegt. En starfssviðið snýr hins vegar að fjárreiðunum fyrst og fremst en ekki túlkun lagalegra álitamála.

Í lok nefndarálitsins er vikið nokkuð að umfjöllun sem var í nefndinni um gildissvið frumvarpsins gagnvart lögum um endurskoðendur og gagnrýni sem hefur komið úr röðum endurskoðenda á frumvarpstextann og starfssvið Ríkisendurskoðunar. Nú er það auðvitað svo að starfsmenn embættis Ríkisendurskoðunar sem sinna endurskoðunarverkefnum hafa til þess löggildingu og lúta að sjálfsögðu lögum um löggilta endurskoðendur eða um endurskoðun ársreikninga og annað slíkt. Hins vegar er eru lög um Ríkisendurskoðun auðvitað sérlög og starfssvið ríkisendurskoðanda og hlutverk hans í sambandi við fjárreiður ríkisins og ríkisaðila er að nokkru leyti sérstaks eðlis þannig að segja má að Ríkisendurskoðun hafi víðtækara hlutverk og þurfi stundum að skoða hlutina frá öðrum sjónarhóli en almennt gildir um endurskoðun ársreikninga.

Með nefndarálitinu fylgja allnokkrar breytingartillögur í samræmi við það sem ég hef hér rakið og vísa ég til tillagnanna hvað það varðar. Ég vil geta þess að við leggjum til, í ljósi þess að komið er fram á mitt ár, að lagabreytingin taki gildi 1. janúar 2017. Nokkur aðlögunartími er því til stefnu jafnvel þó að frumvarpið og þær breytingar sem þar er að finna breyti kannski ekki miklu um dagleg verkefni stofnunarinnar eða umfang hennar að öðru leyti.

Undir nefndarálitið ritar sá sem hér stendur sem er framsögumaður málsins, Ögmundur Jónasson, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, og nefndarmennirnir Birgitta Jónsdóttir, Brynjar Níelsson, Elsa Lára Arnardóttir, Helgi Hjörvar og Willum Þór Þórsson. Árni Páll Árnason og Höskuldur Þórhallsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins og Brynhildur Pétursdóttir, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, lýsti sig samþykka álitinu.