145. löggjafarþing — 113. fundur,  20. maí 2016.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum.

777. mál
[17:18]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Nú mæli ég fyrir frumvarpi til laga um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum. Frumvarp þetta er liður í hinni heildstæðu aðgerðaáætlun um losun fjármagnshafta sem stjórnvöld kynntu í júní á síðasta ári. Fyrsta skrefið í þeirri áætlun var að leysa þann vanda sem slitabú fallinna fjármálafyrirtækja höfðu skapað og hefur sá þáttur verið til lykta leiddur að fullu eins og kunnugt er. Í aðgerðaáætlun stjórnvalda var jafnframt boðað að næsta skrefið á eftir slitabúunum yrði að leysa þann vanda sem hinar svokölluðu aflandskrónur skapa og er nú komið að þeim þætti.

Eins og áður eru það ríkir almannahagsmunir sem krefjast þess að losun fjármagnshafta nái fram að ganga án þess að efnahagslegum og fjármálalegum stöðugleika verði ógnað. Með það að leiðarljósi er losað um höftin í áföngum og hvert skref í þá átt er ekki tekið nema að undangenginni ítarlegri upplýsingaöflun og greiningu á aðstæðum.

Í frumvarpinu sem ég mæli fyrir nú er að finna skilgreiningu á hinum svonefndu aflandskrónueignum. Þær hafa ekki áður verið skilgreindar í íslenskum lögum og er skilgreiningin á þeim nákvæmlega útfærð í átta liðum í 2. gr. frumvarpsins. Undir skilgreininguna falla t.d. innstæður, fjármunir á fjárvörsluinnlánsreikningi, skuldabréf og víxlar sem m.a. eru í eigu erlendra lögaðila sem hafa starfsleyfi eða sinna lögbundinni starfsemi á fjármálamörkuðum.

Aflandskrónueignir eru í eigu eða vörslu erlendra aðila og eru þær taldar líklegar til að leita útgöngu við losun fjármagnshafta með neikvæðum áhrifum á gengi íslensku krónunnar. Gjarnan hefur verið vísað til þessara krónueigna sem aflandskrónueigna þar sem þær eru í vörslu erlendra aðila og þær verða ekki löglega seldar fyrir gjaldeyri nema í viðskiptum við aðra erlenda aðila, auk þess sem gengi í þeim viðskiptum er annað en á við um vöru- og þjónustuviðskipti innlendra aðila sem þá fara fram á innlendum gjaldeyrismarkaði, svokölluðum álandsmarkaði.

Þessar krónueignir eru hins vegar varðveittar hjá innlánsstofnunum og verðbréfafyrirtækjum hér á landi og raunverulegir eigendur þeirra eru bæði erlendir og innlendir einstaklingar og lögaðilar.

Í frumvarpinu er einnig að finna upptalningu á þeim aflandskrónueignum sem af ólíkum ástæðum er talið nauðsynlegt að undanskilja ákvæðum frumvarpsins. Þessar undanþágur eru raktar í 3. gr. frumvarpsins í níu liðum.

Megintilgangur frumvarpsins er að aðgreina aflandskrónueignir enn frekar en nú er og með tryggilegum hætti. Af þeim sökum er lagt til í II. kafla frumvarpsins að aflandskrónueignir í formi innstæðna muni flytjast á innlánsreikninga háða sérstökum takmörkunum hjá innlendum innlánsstofnunum eða Seðlabanka Íslands í tilviki erlendra verðbréfamiðstöðva ef þær óska þess. Þá munu aflandskrónueignir í formi rafrænt skráðra verðbréfa í vörslu innlendra og erlendra fjármálastofnana flytjast á umsýslureikninga hjá Seðlabanka Íslands á nafni viðkomandi vörsluaðila.

Skyldan til að framkvæma ofangreinda tilfærslu verður lögð á fjármálafyrirtæki og verðbréfamiðstöðvar og verður þeim gert að framkvæma hana eigi síðar en 1. september 2016. Þá er lögð sú skylda á innlánsstofnanir að ráðstafa sömu fjárhæð og nemur heildarinnstæðum á reikningum háðum sérstökum takmörkunum hjá þeim til fjárfestinga í svonefndum innstæðubréfum Seðlabanka Íslands. Innstæðubréfin munu bera 0,5% vexti sem verða endurskoðaðir á 12 mánaða fresti af Seðlabanka Íslands.

Úttektir af reikningum sem háðir eru sérstökum takmörkunum verða almennt óheimilar en þó eru mikilvæg frávik frá því. Þannig verða tímabundnar heimildir til úttektar vegna gjaldeyrisviðskipta við Seðlabanka Íslands á viðmiðunargengi til 1. nóvember 2016. Þá mun eigendum aflandskrónueigna sem teljast illseljanlegar standa til boða heimild til að greiða til Seðlabankans þann mun á verðmæti eignarinnar reiknað í evrum sem fólst í viðmiðunargengi annars vegar og hins vegar opinberu miðgengi krónu á móti evru þann 20. maí 2016. Sú heimild gildir einnig til 1. nóvember 2016.

Þá gilda ótímabundnar heimildir til úttektar í eftirfarandi tilvikum:

1. Vegna kaupa á sérstökum innstæðubréfum útgefnum af Seðlabanka Íslands.

2. Vegna millifærslna milli reikninga sem eru háðir sérstökum takmörkunum.

3. Vegna úttektar á fjárhæð að hámarki 6 millj. kr. á almanaksári sé sýnt fram á að innstæður séu í raunverulegri eigu og samfelldu eignarhaldi einstaklings.

4. Vegna áfallinna vaxta, verðbóta vaxta og arðgreiðslna.

Seðlabanka Íslands er í frumvarpinu falið eftirlit með framkvæmd laganna, bankanum eru veittar heimildir til upplýsingaöflunar, heimildir til að ljúka máli með sátt og úrræði í formi dagsekta og stjórnvaldssekta. Loks eru í frumvarpinu lagðar til afleiddar breytingar á lögum um gjaldeyrismál og lögum um rafræna eignarskráningu verðbréfa sem hafa bein tengsl við efni frumvarpsins.

Lagt er til að lögfestar verði undanþágur frá takmörkunum laga um gjaldeyrismál fyrir þær fjármagnshreyfingar og gjaldeyrisviðskipti með aflandskrónueignir sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Þá eru lagðar til breytingar sem miða að því að takmarka möguleika aðila til að sniðganga fjármagnshöftin. Að lokum eru í frumvarpinu lagðar til breytingar á lögum um rafræna eignarskráningu verðbréfa sem ætlað er að tryggja að Seðlabanki Íslands hafi einn heimild til milligöngu um eignarskráningu verðbréfa sem teljast til aflandskrónueigna.

Virðulegi forseti. Verði þetta frumvarp að lögum er áformað að Seðlabanki Íslands haldi gjaldeyrisútboð þar sem öllum aflandskrónueigendum verður gefinn kostur á að skipta aflandskrónueignum sínum fyrir evrur. Frumvarpið felur þannig í sér þá skyldu á vörsluaðila aflandskrónueigna að aðgreina sérstaklega þær aflandskrónueignir sem ekki verða nýttar í fyrirhuguðu gjaldeyrisútboði Seðlabankans. Eigendur aflandskrónueigna sem ekki taka þátt í útboðinu munu áfram hafa umráða- og ráðstöfunarrétt yfir eign sinni. Þeir munu geta tekið út og skipt á gjaldeyrismarkaði öllum vaxtagreiðslum og stundað viðskipti með krónurnar á aflandsmarkaði.

Þegar þessum lið í áætlun stjórnvalda um losun fjármagnshafta er lokið munu næstu skref snúa að heimilum og fyrirtækjum á Íslandi. Áformað er að frelsi einstaklinga til fjármagnshreyfinga verði aukið sem og fjárfestingarheimildir fyrirtækja og lífeyrissjóða. Í tæp átta ár hafa fjármagnshöftin takmarkað áhættudreifingu í eignasöfnum innlendra aðila og heft möguleika innlendra fyrirtækja til að nýta ábatasöm samstarfsverkefni við erlenda aðila. Efnahagslegt óhagræði sem af þessu hlýst fer vaxandi með tímanum og þörf fyrir áhættudreifingu í innlendum eignasöfnum hleðst upp.

Aflandskrónueignir eru nú um 319 milljarðar kr. og eru þær taldar mjög kvikar, þ.e. líklegar til að leita útgöngu. Undir gildissvið frumvarpsins falla m.a. kauphallarskráð verðbréf og gætu eigendur þeirra séð sér þann kost vænstan að selja sín bréf í flýti. Þá eru einnig taldir nokkrir möguleikar á sniðgöngu á aðgerðinni að óbreyttum lögum. Af þessum sökum er talið nauðsynlegt að frumvarpið verði að lögum fyrir næstu opnun fjármálamarkaða. Fái frumvarpið ekki flýtimeðferð skapast veruleg hætta á því að aflandskrónueigendur geti komið sér undan þeim takmörkunum sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu.

Nái frumvarpið fram að ganga er stigið mikilvægt skref í átt að losun fjármagnshafta. Með því aukast verulega líkur á að hægt verði að losa fjármagnshöft að fullu af einstaklingum og fyrirtækjum í landinu sem gætu þá á ný notið þess ábata sem getur fylgt frjálsum fjármagnsflutningum. Þegar betra jafnvægi kemst á eignasöfn innlendra aðila verður sjónum aftur beint að losun fjármagnshafta á aflandskrónueignir í áföngum. Hvenær það gerist ræðst m.a. af erlendri fjárfestingarþörf innlendra aðila, beinni langtímafjárfestingu erlendra aðila, stærð gjaldeyrisforða á hverjum tíma, þróun viðskiptajafnaðar og ytri stöðu þjóðarbúsins.

Virðulegi forseti. Afnám fjármagnshafta er mikilvægasta efnahagsaðgerð sem stjórnvöld standa frammi fyrir um þessar mundir og með því frumvarpi sem ég mæli hér fyrir er farið að sjá vel til lands og tími fjármagnshafta á fólk og fyrirtæki er senn á enda. Þegar höftin voru lögfest í upphafi var stefnt að því að afnema þau svo fljótt sem auðið yrði. Annað kom því miður á daginn. Markmið ríkisstjórnarinnar á vordögum 2013 var að ráðast í að leysa vandann. Vinnan snerist í byrjun að verulegu leyti að því að reyna að nálgast sannleikann um það hvert umfang þessa vanda var og er í raun. Það var ekki einfalt verkefni og margir þurftu að koma að því.

Markmiðið hefur alltaf verið skýrt, að Ísland verði sem allra fyrst fullgildur þátttakandi á alþjóðlegum fjármálamörkuðum og að við skerum burt meinið sem höft á þjóðarbúið er án þess að raska efnahagslegum stöðugleika í samfélaginu. Á þeim grunni getum við svo haldið ótrauð áfram á braut uppbyggingar í mun heilbrigðara efnahagsumhverfi og sett verulegan kraft í áframhaldandi lífskjarasókn fyrir alla landsmenn.

Á þessum vordögum þegar sumarið er farið að láta á sér kræla og bjart er yfir og lundin léttist er ánægjulegt að geta mælt fyrir frumvarpi sem hefur þetta mikla þýðingu og sýnir að okkur er að verða ágengt í þessum mikilvægu verkefnum. Það er þannig líka bjart yfir þjóðarbúskapnum nú þegar skuggi haftanna hopar.

Virðulegi forseti. Að þessu sögðu mælist ég til þess að frumvarpinu verði að aflokinni þessari umræðu vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar.