meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum.
Herra forseti. Hæstv. fjármálaráðherra sagði að hér væri komið að mikilvægum áfanga á langri leið sem hefði hafist fyrir mörgum árum. Það er alveg hárrétt. Fyrsta skrefið var tekið í tíð fyrri ríkisstjórnar þegar við tókum ákvörðun um það á þeim tíma, eins og núna, eftir að mörkuðum hafði verið lokað og læstum inni eignir hinna erlendu kröfuhafa. Nú erum við einnig að stíga mjög mikilvægt skref og ég óska hæstv. fjármálaráðherra allra heilla á því vandasama ferðalagi sem nú er fyrir höndum.
Eins og hæstv. ráðherra sagði hafa menn í fjölmörgum útboðum nuddað niður snjóhengjunni, ég held niður um helming í á annan tug útboða. Við erum núna með 320 milljarða sem þarf með einhverjum hætti að koma fyrir. Mér sýnist að það sé tryggilega gert. Eins og ég skil málið þarf meira að segja ekkert að vera rosalega mikil þátttaka í útboði vegna þess að lausnin í þessu frumvarpi felst í því að afmarka aflandskrónurnar og hlutleysa um töluvert langa framtíð. Það er það sem skiptir máli. Þá er hægt að taka skrefið sem við bíðum eftir sem er að leysa reikninga almennings og lífeyrissjóða. Það skiptir mjög miklu máli.
En vantar ekki eitt í þessa jöfnu? Á sama tíma og við erum að þessu streymir fé til Íslands í krafti vaxtamunar. Ég hygg að því megi slá föstu að það stappi nærri því að 100 milljarðar hafi bæst við vegna þeirra. Með öðrum orðum erum við að eyða hér 300 milljörðum en á sama tíma bætast við aðrir 100 milljarðar. Sú viðbót getur aukist mjög hratt. Þess vegna tel ég að það sem vanti í þetta sé að samhliða hafi hæstv. fjármálaráðherra kynnt hér stjórntæki fyrir Seðlabankann og framkvæmdarvaldið til að hafa hemil á þessu innstreymi ef þörf þykir.
Ég spyr hæstv. fjármálaráðherra eins og ég gerði hér um daginn: Hvenær (Forseti hringir.) kemur að því að við sjáum þau tæki hér? Hvenær hyggst hann leggja það fram?