145. löggjafarþing — 113. fundur,  20. maí 2016.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum.

777. mál
[17:57]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Þau tæki sem hér eru nefnd til sögunnar hafa verið skoðuð í Seðlabankanum og við í fjármála- og efnahagsráðuneytinu höfum átt samstarf við Seðlabankann til að ræða þá kosti sem hér koma til skoðunar. Mér finnst mikilvægt eins og ég hef áður sagt í þinginu að halda því til haga að einhver slík tæki munu ekki ein og sér valda straumhvörfum. Aðrir þættir hafa mun meiri áhrif á þess háttar hreyfingar og þar skiptir máli að vel sé haldið utan um opinber fjármál, að hér séu ekki skapaðar aðstæður sem kalla á of hátt vaxtastig. Slíkir þættir einir og sér geta haft mun meiri áhrif en einhver möguleg tæki stjórnvalda og þar með Seðlabankans til að stemma stigu við kviku fjármagni sem leitar skammtímaávöxtunar.

Að þessu sögðu ítreka ég það sem ég hef sagt, þessi tæki hafa verið til skoðunar og það er unnið að þessu máli í samstarfi fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Seðlabankans. Ég vænti þess að innan tíðar verði hægt að boða þær leiðir sem við viljum hafa opnar í þessum efnum. Þær sem einkum hafa verið nefndar eru annars vegar einhvers konar skattlagning og hins vegar bindiskylda. Mér þykir líklegra að síðarnefnda leiðin verði frekar valin en skattlagningarleiðin, en heilt yfir er ekki hægt að segja að það standi í vegi fyrir því að við stígum þau skref sem við erum að stíga hér (Forseti hringir.) og í framhaldinu frekari skref til afléttingar að þetta liggi ekki endanlega fyrir.