145. löggjafarþing — 114. fundur,  22. maí 2016.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum.

777. mál
[20:28]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hef sömu kvörtun og hv. þingmaður, þá að tíminn sem við höfum til að afgreiða þetta mál er afskaplega skammur. Vitaskuld skil ég að það eru málefnalegar ástæður fyrir því að fara með málið hratt í gegnum þingið en hins vegar gerir samráðsskorturinn það að verkum að erfitt er að láta málið fá þá meðferð sem svo mikilvæg mál eiga að fá. Þótt þrjár umsagnir hafi borist um þetta mál eru það aðilar sem ég vænti að hafi vitað að málið væri að koma og hafi að einhverju leyti getað undirbúið sig þótt þar sé reyndar einnig kvartað undan flýtinum.

Einn aðili úti í samfélaginu sem ég hefði viljað fá umsögn frá er Persónuvernd. Í 14. gr. frumvarpsins er kveðið á um eftirlit Seðlabankans. Mér er minnisstætt að í hagstofumálinu svokallaða, fyrsta sumarþingið sem ég var hér að störfum, var hafður uppi sá málflutningur, m.a. af minni hálfu, að um leið og menn fengju heimildir til upplýsingasöfnunar vildu þeir ganga lengra. Þá vildi Seðlabankinn sjálfur einmitt fá sambærilegar heimildir og Hagstofan til að geta gert allar sínar gloríur. Allt í góðu með það, maður skilur svo sem að stofnun sem Seðlabankinn vilji hafa aðgang að upplýsingum vegna þess að upplýsingar eru gagnlegar. Það er heili vandinn, þess vegna vill fólk fá upplýsingar.

Ég velti fyrir mér hvort eitthvað hafi verið fjallað um upplýsingasöfnun í 14. gr. í nefndinni, hvort sem það er þá fyrri eða seinni málsgreinin í þeirri grein, og sömuleiðis hvernig skilningur hv. þingmanns sé á þeirri grein, þ.e. sérstaklega hversu langt hún eigi að ná. Að mínu mati er ákvæðið mjög víðtækt. Ég skil greinina þannig að hún varði einungis það eftirlit sem er nauðsynlegt til að framfylgja þessum lögum. Mér finnst mjög mikilvægt að það sé algjörlega skýrt á hinu háa Alþingi að heimildin sé takmörkuð við það sem er nauðsynlegt til að framfylgja þeim lögmætu markmiðum sem er að finna í þessu frumvarpi. Ég óska eftir skilningi hv. þingmanns á því efni.