145. löggjafarþing — 114. fundur,  22. maí 2016.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum.

777. mál
[21:23]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að hafa kynnt fyrir mér hugtakið spagettífélög. Það er mjög tært og upplýsandi og maður skilur það um leið, en það var mér framandi fram að þessu. Þetta er ekki það fyrsta sem ég hef lært af hv. þingmanni.

Mér skildist á andsvari hv. þingmanns að hún teldi, ég bið hana forláts ef ég hef misskilið hana, að upplýsingaákvæðinu sem ég vísaði til væri einungis beint gegn einstaklingum. En ég sé engin merki um það í viðeigandi grein. Þar segir, með leyfi frú forseta:

„Skiptir ekki máli í því sambandi hvort upplýsingar eða gögn varða þann aðila sem beiðninni er beint til eða aðra aðila sem hann getur veitt upplýsingar um og varða athuganir og eftirlit Seðlabankans. Lagaákvæði um þagnarskyldu takmarka ekki skyldu til að veita upplýsingar og aðgang að gögnum.“

Hvernig túlkar hv. efnahags- og viðskiptanefnd þetta ákvæði? Með svohljóðandi hætti, með leyfi frú forseta:

„Ekki liggur fyrir hverjir raunverulegir eigendur aflandskróna eru en í útboðum Seðlabanka Íslands er gert ráð fyrir að hægt sé að kalla eftir slíkum upplýsingum og skylt að veita þær sé þess óskað.“

Með öðrum orðum: Án þess að ég hafi að minnsta kosti gert mér grein fyrir því sýnist mér deginum ljósara að ákvæði sem er að finna í frumvarpinu, að 14. gr. um eftirlit sé það alltumlykjandi og það víðfeðm að hér sé í reynd náð því takmarki sem var fólgið í þingsályktunartillögu Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. Ég fæ ekki betur séð en að að þessu samþykktu sé framkvæmdarvaldið komið með heimildir til að krefjast upplýsinga. (Forseti hringir.) Hitt er svo annað mál hvort það sé jafn ljóst að þær upplýsingar sé skylt að veita til dæmis skattrannsóknarstjóra. Ég mundi telja það. Það er eitt af því sem ætti að skoða á milli umræðna.