meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum.
Hæstv. forseti. Ég datt nú eiginlega bara alveg út þarna. Ég man ekki einu sinni hvaða …(ÖS: Það var þessi hér, í krafti hvaða heimilda var þetta?) Já. (Gripið fram í.) Það er orðið svo áliðið. Það er orðið framorðið, Ingibjörg. [Hlátur í þingsal.]
Nei. Hvað þetta varðar þá er gert ráð fyrir heimild í útboðum til þess að kalla eftir þessum upplýsingum. Það kann undir vissum kringumstæðum ekki að vera nauðsynlegt. Sumt getur verið grunsamlegt og því er mjög eðlilegt að heimildin sé notuð ef menn telja þörf á því, en ekki að gera þetta í raun að skyldu alltaf.
Það má kannski segja að það séu persónuverndarsjónarmið að vera ekki alltaf að hnýsast í eitthvað sem skiptir kannski ekki máli. En ég tel mikilvægt að hafa þennan möguleika, sem hluta af eftirlitinu, og ég reikna með að Seðlabankinn geri almennt kröfu um þetta eða oftast. Að minnsta kosti þegar ástæða er til að ætla að eitthvað grunsamlegt geti verið til staðar.