fjárframlög til Verkmenntaskólans á Akureyri.
Virðulegi forseti. Ég skildi ekki alveg svarið. Það er sem sagt ekki búið að leysa vandann. Hér er viðurkennt að mannleg mistök hafi átt sér stað í einhverju kerfi, en vandi þessara skóla er enn til staðar. Þá er ég sérstaklega að tala um Verkmenntaskólann á Akureyri þar sem kennarar leggja beinlínis sjálfir út fyrir kostnaði til þess að hægt sé að halda skólastarfinu áfram.
Ef það er ákvörðun ráðherra að leysa ekki úr þessu vandamáli, að þessir skólar eigi að vera fjársveltir áfram, þá liggur fyrir að það þarf að draga saman seglin. En þá er svolítið athyglisvert að við drögum saman seglin í verknáminu. Í einu orðinu tölum við um að við þurfum að auka hér verkmenntun og segjum að kannski séum við þjóð sem sé of mikið í bóknáminu, en svo horfum við á skóla sem hafa ekki einu sinni efni á því að endurnýja tölvur.
Þetta svar veldur mér vonbrigðum, virðulegi forseti. Ég ætla að gefa hæstv. menntamálaráðherra annað tækifæri til að koma og svara því bara hreint út: Er búið að leysa þennan vanda? Ef ekki, hvað er þá að fara að gerast með Verkmenntaskólann á Akureyri? Er fjármálaráðuneytið byrjað að greiða út rekstrarfé til skólans?