metanframleiðsla.
Hæstv. forseti. Ég þakka málshefjanda fyrir þessa mikilvægu og þörfu umræðu sem lýtur að umhverfismálum og nýtingu á orku. Mig langar að nefna punkt sem ég fór að velta fyrir mér. Víða um land eru smávirkjanir. Bændur, fólk á lögbýlum, eru farnir að virkja í einhverjum mæli, farnir að verða sjálfum sér nægir og farnir að hlaða bílana sína; einstaka bændur eru farnir að gera það. Það tel ég vera mjög jákvætt skref. Nú þegar við erum komin á þann árstíma að haughús eru full af skít um allt land finnst mér mjög spennandi að hugsa til verkefnisins á Suðurlandi og horfi til þess og vonast til þess að við getum fundið leiðir til að nýta það. Ég veit að tæknilegar hindranir eru margar. En ég gæti trúað því að við ættum að skoða það betur og velta því fyrir okkur hvernig við gætum, jafnvel með samvinnu, snúið okkur að því að reyna að nýta þá auðlind sem vissulega er til staðar.