rannsókn á mánaðartekjum háskólanema.
Virðulegi forseti. Þetta er mjög mikilvæg umræða sem við erum að taka og ég gæti talað um málið svo klukkutímum skiptir.
En það er eitt sem mig langar til að vekja sérstaka athygli á þegar við erum að tala um útreikninga á framfærslu námsmanna, það er hvernig LÍN reiknar út húsnæðisframfærslu. Þar er einungis miðað við stúdentagarðana, en eins og fólk veit, á að vera almannavitneskja, hafa stúdentagarðarnir takmarkað pláss og stúdentagarðarnir eru ekki á markaðsverði.
Það er þannig að ef þú færð bara 75.937,5 kr. á mánuði í átta mánuði til að sjá fyrir eigin húsnæði og kemst ekki inn á stúdentagarðana þá mun það duga þér ákaflega skammt. Það er því ákveðinn forsendubrestur þegar verið er að reikna út námslánin. Ég veit ekki betur en að námslán ættu að vera álitin sem laun stúdenta og þar af leiðandi væri bara allt í lagi að bera þetta saman við launavísitölu. En ef hæstv. ráðherra hefur aðra skoðun á því þá er það honum að sjálfsögðu velkomið.