145. löggjafarþing — 116. fundur,  23. maí 2016.

Grænlandssjóður.

754. mál
[17:07]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Össur Skarphéðinsson) (Sf):

Herra forseti. Í sjálfu sér hef ég ekki annað þarfara að gera í þessum þingsölum en að reyna að ýta hér í gegn þeim frumvörpum ráðherrans sem ég tel mikilvægust. Frá mínum bæjardyrum séð er þetta frumvarp mjög hátt skrifað. Ég tel sem sagt að það sé mikilvægt að ráðherrann nái að mæla fyrir frumvarpinu og mun gera mitt til þess að afbrigði fáist til þess, en síðan held ég að það ætti að eiga greiða leið í gegnum þingið. Nú er það búið að liggja fyrir til umsagnar. Það eru á því gallar að mínu viti. Ég ætla ekki að ræða þá hér. En það er auðvelt að sníða þá af.

Smáfuglarnir verða alltaf fyrstir úti í hretunum. Það er alveg ljóst að þessir litli sjóður hefur algerlega gleymst innan Seðlabankans. Þetta er náttúrlega hörmungarsaga og Seðlabankanum til gríðarlegs vansa; að hlusta á það hér hvernig hæstv. ráðherra rekur það hvernig ávöxtun þessa sjóðs hefur að engu orðið.

Tilviljun veldur því að ég hef um 20 ára skeið setið í stjórn annars sjóðs sem hefur úr svolítið meiru að spila en þessi sjóður. Hann hefur líka gengið í gegnum hret; bankahrun, tímabundið, sem leiddi til þess að ávöxtun var lítil. En eigi að síður hefur ávöxtun þess sjóðs verið með þeim hætti að honum hefur alltaf tekist á hverju ári að úthluta nokkrum milljónum króna. Ef við horfum á traustar og áhættulitlar fjárfestingar sumra lífeyrissjóða, eins og til dæmis Frjálsa lífeyrissjóðsins, blasir við að slík ávöxtun mundi leiða til þess að miðað við það fé sem sjóðurinn hefur þrátt fyrir allt til reiðu og má ávaxta mætti segja, miðað við varfærið mat, að líkast til mætti úthluta úr sjóðnum, væri hann ávaxtaður með svipuðum hætti, meira en tvöfalt þeirri upphæð sem kemur fram í frumvarpi hæstv. ráðherra á hverju ári. Það munar um 3,5 til 5 millj. kr. (Forseti hringir.) til þessara verka.

Ég tel brýnt að hæstv. ráðherra komi málinu fram. Við, unnendur Grænlandssamstarfsins í þessum sölum, skulum svo sjá til þess að það verði ekki úti í því hreti sem stundum brestur hér á þrátt fyrir vorkomuna.