145. löggjafarþing — 118. fundur,  25. maí 2016.

störf þingsins.

[15:20]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg):

Forseti. Nýlega keypti félag í eigu Gamma 450 íbúðir, sem sagt leigufélagið Klett, af Íbúðalánasjóði. Sagt er að kaupverðið hafi verið rétt ríflega 10 milljarðar. Eru þetta náttúrlega töluverð tíðindi í sjálfu sér og mikil hreyfing á annars óþroskuðum leigumarkaði þar sem við vitum að leigan á Íslandi er mjög há miðað við nágrannalöndin og þarna er um að ræða opinberan aðila sem selur frá sér eignir af þessu tagi til einkaaðila sem hefur auðvitað það að markmiði að hámarka arðsemi sína. Þó að kvöð fylgi ákvörðuninni um að óheimilt sé að hækka leiguna í tólf mánuði má velta fyrir sér hversu lengi sú kvöð haldi eftir þann tíma.

Ekki liggur fyrir að gerð hafi verið nein úttekt á áhrifum þessarar sölu á markaðinn, en þegar þessi ákvörðun var tekin bókaði fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í stjórn Íbúðalánasjóðs um söluna, með leyfi forseta:

„Meiri hluti stjórnar Íbúðalánasjóðs hefur tekið ákvörðun um að selja Klett leigufélag. Leigumarkaðurinn á Íslandi er enn í mótun, húsnæðisverð verulega íþyngjandi og nauðsynlegt að stefna í átt að félagslegum lausnum í stað leigufélaga sem rekin eru í hagnaðarskyni. Með sölu á Kletti fer forgörðum tækifæri til að efla félagslegt leiguhúsnæði í samfélagslegri eigu til hagsbóta fyrir almenning og vegur það þyngra en að styrkja fjárhagslega afkomu sjóðsins með sölunni. Undirrituð situr hjá við ákvarðanir er varða sölu á Kletti.“

Virðulegur forseti. Ég tel ástæðu til að þingheimur viti af þessari afstöðu stjórnarmanns Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í svo stóru húsnæðismáli.


Efnisorð er vísa í ræðuna