145. löggjafarþing — 118. fundur,  25. maí 2016.

starfsemi kampavínsklúbba.

[15:43]
Horfa

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Það er ástæða til að þakka fyrir þessa umræðu og í raun og veru full ástæða til að taka undir allt sem fram kemur í innleiðingu málshefjanda. Þetta er svo sem mál sem hefur komið til kasta þingsins áður og ég minni á þingsályktunartillögu Bjarkar Vilhelmsdóttur o.fl. þingmanna Samfylkingarinnar frá 2013 um endurskoðun á lögum og stjórnvaldsfyrirmælum til að koma í veg fyrir rekstur svokallaðra kampavínsstaða, þ.e. veitingastaða sem gera út á nekt starfsfólks og aðgang að því í einkarými.

Það verður æ betur ljóst hvað í þessari starfsemi felst. Það kann að vera að upphaflega hafi fólk litið á starfsemi nektarstaða, eins og þetta var upphaflega kallað, sem erótíska afþreyingu sem væri saklaus að mestu og það kann að vera að starfsemi þessara klúbba hafi breyst í tímans rás. En nú orðið hlýtur öllum að vera ljóst að þrátt fyrir ýmsar takmarkanir sem hafa verið settar síðustu ár fyrir þessari starfsemi eru vændi, mansal og klámvæðing raunveruleg vandamál á Íslandi og það er nauðsynlegt að sporna gegn þeirri þróun. Þess vegna tek ég heils hugar undir með hv. málshefjanda, þessi tegund starfsemi er ekki æskilegur liður í ferðaþjónustu.

Með fullri virðingu fyrir atvinnufrelsinu er rökstuddur grunur um að í lokuðum rýmum kampavínsklúbba sé stundað vændi og þá má líka leiða líkur að því að að minnsta kosti hluti þeirra stúlkna sem starfar á þessum stöðum, m.a. sem dansarar, hafi verið seldur mansali eða að bág staða þeirra í heimalandinu hafi verið misnotuð. Hér takast á atvinnufrelsi og mannréttindi og ég tel að í öllu falli sé full ástæða til að taka undir það með málshefjanda að þessi starfsemi er ekki til sóma (Forseti hringir.) fyrir okkur Íslendinga og tímabært að leita allra leiða til að stemma frekari stigu við starfsemi þessara staða.