145. löggjafarþing — 118. fundur,  25. maí 2016.

starfsemi kampavínsklúbba.

[15:56]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf):

Forseti. Líkt og aðrir þingmenn á undan mér þakka ég málshefjanda fyrir að stofna til þessarar umræðu. Ég hlýt samt sem áður að gera athugasemdir við atriði sem kom fram í máli málshefjanda þar sem hann gaf í skyn að við þingmenn hefðum almennt ekki, og kannski enginn nema hann, áhyggjur af mansali vegna þess að hann einn af þeim þjóðflokki sem vinnur í þessum sal hefði verið á kynningu þar um. Ég hlýt að nota þetta tækifæri til að mótmæla þessu. Ég hef miklar áhyggjur af mansali þó að ég hafi ekki verið á þessum fundi.

Þess vegna get ég einmitt tekið undir að það þarf sérstaklega að fylgjast með þessum svokölluðu kampavínsklúbbum. Mér finnst alveg koma til greina að við athugum með að banna þá með lögum þó að auðvitað skipti atvinnufrelsi gífurlega miklu máli. Það eru ákveðin mannréttindi að fólk geti stundað þá atvinnu sem það vill en á hinn bóginn er sú starfsemi sem fer fram á þessum stöðum þess eðlis að ég tel að ekki megi líta fram hjá því en vel megi skoða hvort það megi banna þessa starfsemi, einmitt vegna þess að það er hætta á að þar fari fram mansal. Einmitt þess vegna, hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson.