starfsemi kampavínsklúbba.
Forseti. Ég þakka fyrir gagnlega umræðu. Ég er með nokkur atriði. Hér kemur í fyrsta lagi fram nokkur áferðar- og áherslumunur í málflutningi þeirra þingmanna sem hafa talað. Þó held ég að segja megi að allir þingmenn séu sammála um að okkur beri að stemma stigu við mansali og kynbundnu ofbeldi af hvaða toga sem það er. Hins vegar eru spurningar um hvort þurfi sterkari lagastoð eða hvort eigi að fara leið banns. Þar greinir menn á. Hins vegar hefur það líka legið fyrir, m.a. í svari við spurningum hv. málshefjanda, að kampavínsklúbbar svokallaðir eru mjög gjarnan vettvangur ýmiss konar kynferðisafbrota, mansals og vændis og annarrar ólögmætrar starfsemi, og hljóta þess vegna að vera undir ljósinu þegar við erum að fjalla um að bæta samfélagið.
Mig langar að nefna að nefnd Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum sendi tilmæli til íslenskra stjórnvalda nú á vordögum og dálítinn lista um það hvað við ættum að gera til að bæta jafnréttismál á Íslandi. Við hæstv. ráðherra höfum nokkrum sinnum rætt þau mál, til að mynda að fjölga konum innan lögreglunnar, styrkja stöðu kvenna í Hæstarétti og víðar, en á aðgerðalistanum er m.a. nefnt að fjármagna aðgerðir gegn mansali. Hv. þingmaður lýsti yfir sínum sérstaka áhuga á mansalsmálum en sú sem hér stendur lagði ítarlega fyrirspurn fyrir innanríkisráðherra um framkvæmd mansalsáætlunar þar sem fram kemur að við þurfum að gera betur að því er varðar fjármögnun þeirrar áætlunar. Á listanum (Forseti hringir.) kemur líka fram að það þurfi að rannsaka stöðu þeirra kvenna sem starfa í svokölluðum kampavínsklúbbum, þar þurfum við líka að gæta að því að standa vörð um stöðu þessara kvenna þó að mín skoðun sé (Forseti hringir.) afdráttarlaust sú að þessum klúbbum beri að loka.