lögreglulög og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá allsherjar- og menntamálanefnd með breytingartillögum um frumvarp til laga um breytingu á lögreglulögum og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, sem fjallar um menntun lögreglu.
Nefndin fékk fjölmarga gesti á sinn fund til þess að fjalla um þetta mikilvæga mál. Flestir þeirra, ef ekki allir, höfðu komið að undirbúningi málsins og augljóst að undirbúningur hefur verið mikill og mikið samráð haft. Almennt séð voru gestirnir mjög jákvæðir út í málið og fögnuðu þessari breytingu. Einu athugasemdirnar sem komu sneru að vissum útfærslum. En um málið í heild sinni voru allir sammála að við værum á réttri leið. Svo var bara spurning hversu hratt ætti að fara í þetta og annað slíkt.
Markmiðið með frumvarpinu er að gera breytingar á fyrirkomulagi lögreglumenntunar á Íslandi þannig að grunnnám í lögreglufræðum, sem hingað til hefur farið fram í Lögregluskóla ríkisins, færist upp á háskólastig. Með frumvarpinu verður sú breyting gerð á 28. gr. lögreglulaga, nr. 90/1996, að auk þeirra sem lokið hafa prófi frá Lögregluskóla ríkisins megi skipa þá til löggæslustarfa sem lokið hafa diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þar með talið starfsnám á vegum lögreglunnar.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að við breytinguna hætti Lögregluskóli ríkisins störfum en innan embættis ríkislögreglustjóra taki til starfa svokallað mennta- og starfsþróunarsetur sem m.a. gegni því hlutverki að annast starfsnám nemenda í lögreglufræðum, hafa umsjón með símenntun lögreglumanna og vera stjórnvöldum til ráðgjafar um menntun lögreglumanna. Er því reiknað með að mennta- og starfsþróunarsetrið taki við hluta þeirra verka sem nú eru á hendi Lögregluskóla ríkisins auk þess að sinna fleiri verkefnum.
Það var kannski um þetta sem umræðurnar snerust svolítið mikið, þ.e. þá tvo þætti sem frumvarpið snýst um. Það er annars vegar grunnnám í lögreglufræðum sem verður á ábyrgð þess háskóla sem ráðuneytið gerir samstarfssamning við. Það á að vera alveg skýrt núna að hann mun bera fulla ábyrgð á grunnnáminu en í fullu samráði við mennta- og starfsþróunarsetur og aðrar stofnanir og hagsmunaaðila sem koma að lögreglunni á einn eða annan hátt. Þarna er alveg tryggt gegnum sjálfstæði háskólanna og lög um það að þeir beri ábyrgð á náminu. Í öðru lagi mun mennta- og starfsþróunarsetrið vera stjórnvöldum til ráðgjafar og sjá um símenntun og þjálfun og annað slíkt sem fellur ekki beint undir grunnnámið og endurmenntun. Það mun þá líka vera til taks fyrir háskólana um sérhæfð atriði eftir atvikum.
Ég vil taka fram hver aðdragandinn er að því að frumvarpið er komið fram og af hverju er verið að fara þessa leið núna. Fyrir um tveimur árum var samþykkt á Alþingi að sameina löggæsluembættin og aðskilja lögregluna og sýslumennina. Þá bað allsherjar- og menntamálanefnd um það í bráðabirgðaákvæði að innanríkisráðuneytið mundi setja af stað vinnu um að endurskoða menntun lögreglunnar og hvernig væri hægt að gera hana sambærilega því sem gerist annars staðar á Norðurlöndunum og þar sem nám lögreglumanna er hvað best úr garði gert. Niðurstaðan varð sú að fara þessa leið eftir mikla vinnu í tveim undirbúningshópum, sem sást alveg greinilega í vinnu nefndarinnar að hafði skilað sér.
Ég þakka innanríkisráðuneytinu og öllum þeim sem þar komu að og þeim sem þeir leituðu til og fengu sér til aðstoðar fyrir góða undirbúningsvinnu.
Ég vil taka fram að fyrir nefndinni var mikið rætt um sum útfærsluatriði, svo sem hvernig verklega námið, starfsnámið, yrði nákvæmlega útfært og hvernig hitt og þetta færi fram. En þetta eru útfærsluatriði sem tengjast lögunum ekki beint. Í grunninn marka lögin þessa línu, hver beri ábyrgð á hvaða þætti námsins og í hvaða ferli það er, eins og hjá mennta- og starfsþróunarsetri annars vegar og að annað verði innan háskólastofnunar og þá heimild til þess að skipa menn til starfa í lögreglunni eftir að hafa lokið 120 stöðluðum einingum í lögreglufræðum. Í dag er skilyrði að hafa lokið námi frá Lögregluskóla ríkisins, þannig að það þarf að breyta því.
Það eru því sum útfærsluatriði eftir. Flestu er búið að ganga frá og er komið á fullt skrið. Það kom fram fyrir nefndinni að ríkislögreglustjóri hefur hafið undirbúning að stofnun mennta- og starfsþróunarsetursins, að koma því af stað. Mikið samtal hefur verið við háskólana og fulltrúar þeirra komu fyrir nefndina og lýstu því yfir að þeir væru áhugasamir um að taka við þessu námi, allir fjórir háskólarnir sem komu fyrir nefndina, þ.e. Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst, Háskólinn í Reykjavík og Háskóli Íslands. Allir treystu sér til þess að hefja námið strax í haust. Þá er áætlað, þegar búið verður að ákveða í hvaða skóla námið verður, að teknir verði inn 40 nemendur.
Mikið var rætt og kom fram í flestum umsögnum, þó ekki öllum, um starfsmenn Lögregluskólans, núverandi starfsmenn og að það væri mikilvægt að starfskraftar þeirra yrðu nýttir svo að sú þekking og reynsla sem þeir búa yfir tapist ekki út úr lögreglunáminu. Tekur nefndin undir það. Það sem er öðruvísi en oft áður og kannski ástæðan fyrir því að ekki er hægt í lagafrumvarpinu sjálfu að tryggja þessum starfsmönnum öllum stöðu í nýju fyrirkomulagi er að þetta er grundvallarbreyting á þeirri starfsemi sem fer fram. Það er verið að gera grundvallarbreytingu á lögreglunáminu og hvernig það er útfært og framkvæmt. Það er ekki verið að færa starfsemi Lögregluskólans inn í einhverja aðra starfsemi eða sameina við aðra heldur er verið að gera grundvallarbreytingu. Þar af leiðandi flækir það svolítið málið að færa alla starfsmennina í einu vetfangi með lögum á milli.
Nú þegar hefur mennta- og starfsþróunarsetur haft samband við hluta af starfsmönnum Lögregluskólans þar sem setrið sér fram á að þekking þeirra muni nýtast best hjá sér við ákveðna þætti. Það kom fram fyrir nefndinni að lögreglustjóraembættin mundu líka vilja nýta sér þessa þekkingu fyrir þjálfun innan húss fyrir sitt starfsfólk og jafnvel samstarf. Það er margt sem embættin þurfa að þjálfa sína starfsmenn í og sjá um vissa endurmenntun. Svo er önnur endurmenntun og síþjálfun sem er á ábyrgð hvers lögreglumanns fyrir sig. Þarna er vilji til að nýta þá þekkingu og reynslu sem núverandi starfsmenn Lögregluskólans hafa. Innanríkisráðuneytið hefur líka sett af stað vinnu um hvernig það geti komið að því að finna verkefni fyrir viðkomandi starfsmenn til að halda þessari þekkingu. Einnig kom fram fyrir nefndinni að allir háskólarnir hafa lýst því yfir að þeir mundu vilja fá að leita í þá þekkingu sem er í Lögregluskólanum.
En allt er þetta þeim annmörkum háð að enn þá er ekki vitað um fjöldann og nákvæmlega hvaða þekking og reynsla á heima á hvaða stað fyrir sig. Það mótast svolítið með framkvæmdinni. En nefndin áréttaði að mjög mikilvægt væri að úr þessi leystist sem allra fyrst. Því er ánægjulegt að við séum að afgreiða málið frá nefndinni núna og það er komið á rekspöl. Þá styttist í að staðan fari að skýrast.
Þá var líka rætt mikið um undirmönnun í lögreglunni og fjármögnun, hvort breytingin og það að leggja niður núverandi fyrirkomulag niður á sama tíma mundi skapa stórt gap. Því er ekki að leyna að þegar er gerð svona stór og mikil breyting, hvort sem hún er gerð núna eða síðar eða hefði verið gerð áður, myndast alltaf smá gap. Hjá því verður ekki komist. Um leið verður samt að benda á það að undanfarin skipti hefur Lögregluskólinn aðeins innritað um 16 nemendur, mest 30 fyrir nokkrum missirum. Með nýju fyrirkomulagi er áætlað að taka um 40 nemendur inn á hverju hausti. Áætlanir gera ráð fyrir að miðað við eðlilega starfsmannaveltu í lögreglunni og áætlaða þörf á lögreglumönnum eigi að taka um þrjú ár í nýju fyrirkomulagi til að vinna upp þetta gap. Á þremur árum á lögreglan að geta verið mönnuð faglærðum lögreglumönnum að fullu.
Strax næsta vor, takist þau áform sem við stefnum að og ég segi bara að þau verði að takast, að 40 lögreglumenn innritist strax í haust, gerum við ráð fyrir að það verði þá allt að 40 lögreglumenn sem hafa verið í lögreglunáminu og lokið tveimur önnum, sem muni óska eftir að hefja starfsnám sitt hjá löggæsluembættunum næsta sumar. Í starfsnáminu er það þannig að visst verklegt nám er í háskólanum og svo verður, til þess að uppfylla réttindin, að starfa ákveðið lengi í lögreglunni, fá ákveðna reynslu til þess að fá full réttindi. Það munu væntanlega flestir kjósa að gera það strax næsta vor. Þetta mun seinka útskrift. Ef við hefðum haldið gamla kerfinu áfram, við hefðum sem sagt ekki verið að gera þessa breytingu, þá hefði næsti árgangur útskrifast haustið 2017, árgangurinn sem er á eftir þeim sem er núna við nám. En í staðinn mun fyrsti árgangur í nýja kerfinu útskrifast vorið 2018. Þetta er allt að átta mánaða seinkun, en þó ekki lengra en það. Þótt við séum að breyta kerfinu erum við aðeins að seinka því um átta mánuði að útskrifa fullnumda lögreglumenn. En þeir munu líka vera yfir 100% fleiri en Lögregluskólinn hefur útskrifað að undanförnu. Þannig að við teljum þetta vera skref í rétta átt.
Að sjálfsögðu er markmiðið að enginn ófaglærður starfi í lögreglunni og er það vilji allra að það náist sem fyrst. Eins og ég sagði áðan er stefnt að því að það náist innan þriggja ára, en að undanförnu hafa verið að staðaldri um 13 ófaglærðir afleysingamenn í lögreglunni. Það eru fleiri yfir hásumarið.
Umræða var um fjármögnunina. Það er mikilvægt að svona nám fari fullfjármagnað af stað. Gerðir hafa verið kostnaðarútreikningar og ég fagna því að gert er ráð fyrir því að breytingin kosti, eins og segir í nefndarálitinu, með leyfi forseta:
„Í athugasemdum með frumvarpinu er að finna kostnaðaráætlun þar sem gert er ráð fyrir auknum kostnaði við að koma náminu á háskólastig. Að stærstum hluta er um að ræða aukinn kostnað vegna kennslu. Gert er ráð fyrir að kostnaður við að koma náminu á háskólastig verði 28 millj. kr. árið 2016, 96 millj. kr. árið 2017 og að árlegur kostnaður eftir það verði 134 millj. kr. þegar kennt verður á fyrsta og öðru ári námsins.“ — Það er þá aukalega við það sem er núna í náminu.
Það er gott að þetta takist. Háskóli Íslands hafði einhverjar áhyggjur af því að þetta mundi ekki vera nóg en aðrir háskólar lýstu sig tilbúna til þess að vinna innan þessara fjárheimilda, sem er vel.
Bent var á það fyrir nefndinni að sjálfstæði háskólanna þyrfti að vera skýrt og að hér mundu gilda lög um háskóla. Í umsögn Háskóla Íslands er lagt til að vísað verði til laga um háskóla, nr. 63/2006, þar sem það á við. Nefndin tekur undir þessa tillögu og telur hana til þess fallna að marka betur hlutverk þess eða þeirra háskóla sem við verður samið um framkvæmd grunnnáms í lögreglufræðum. Með því að vísa til laga um háskóla verði skýrt hvar mörk ábyrgðar háskólanna í tengslum við námið liggi, svo og mörk ábyrgðar annarra aðila, svo sem mennta- og starfsþróunarsetursins. Þannig verði tekin af öll tvímæli um að viðkomandi háskóli eða háskólar beri fulla ábyrgð á grunnnáminu og framkvæmd þess án þess að girt sé fyrir að háskólar leiti samstarfs og samráðs við aðrar stofnanir á borð við lögregluembætti, fangelsi eða aðra fagaðila. Á sama hátt sé ljóst að mennta- og starfsþróunarsetrið beri ábyrgð á símenntun lögreglu, þjálfun starfsmanna lögreglu og öðrum verkum sem því eru sérstaklega falin, en setrið geti óhindrað leitað samráðs og samstarfs við aðila, t.d. við þann eða þá háskóla sem sinna grunnnáminu. Samráð muni fara fram milli háskóla og mennta- og starfsþróunarseturs um heildarútfærslu námsins.
Að framangreindu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með þeirri breytingu að á eftir orðinu „námseiningum“ í c-lið 1. mgr. 4. gr. komi: sbr. ákvæði laga um háskóla, nr. 63/2006.
Nú hef ég farið yfir helstu atriði málsins. Ég vil ítreka að ég hef ekki komið inn á sum atriði, en það eru þá útfærsluatriði sem eru unnin í samvinnu við lögregluna, menntamálaráðuneytið, innanríkisráðuneytið og síðan í samvinnu við viðkomandi háskóla og hefur verið rætt í samráði við Lögreglustjórafélag Íslands, Landssamband lögreglumanna, Félag yfirlögregluþjóna og einstaka lögreglustjóra og fleiri aðila, sem allir hafa lýst yfir ánægju með þróun mála í þessu efni.
Ég vona að við getum afgreitt þetta mál með áðurnefndri breytingu og að við munum sjá fram á mun öflugra lögreglunám sem er náttúrlega fyrst og fremst markmiðið með þessu, að gera lögregluna mun betur í stakk búna til að takast á við breytt umhverfi og tryggja öryggi borgaranna og réttaröryggi. Einnig að starfsmönnunum muni líða betur í vinnunni, vera betur undirbúnir í starfi sínu, enn betur en í dag.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skrifar undir álitið með fyrirvara um fjármögnun og kostnaðaráætlun ráðuneytisins. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir og Jóhanna María Sigmundsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Undir álitið skrifa hv. þingmenn Unnur Brá Konráðsdóttir, Vilhjálmur Árnason, Guðmundur Steingrímsson, Líneik Anna Sævarsdóttir, Haraldur Einarsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, með fyrirvara eins og áður var getið, Haraldur Einarsson og Helgi Hrafn Gunnarsson.
Að því sögðu þakka ég nefndinni kærlega fyrir gott starf og góðan samhljóm í þessu máli. Það eru allir sammála um að það sé mikilvægt að þetta gangi vel og að allir séu að vinna í sömu átt, lögreglunni til heilla.