skil þjónustu ríkis og sveitarfélaga í heilbrigðismálum.
Forseti. Sífellt berast mér sögur því hversu laskað heilbrigðiskerfi okkar er. Ég hef ekki séð nein „konkret“ úrræði gagnvart því neyðarástandi sem ríkt hefur mjög lengi. En mig langar aðeins að tala við ráðherrann um gráu svæðin, þ.e. um þau skrýtnu skil sem eru á þjónustukerfunum og hver ber ábyrgð á hverju. Mig langar að byrja á að taka dæmi um ungan mann með vöðvarýrnunarsjúkdóm, sem lenti í hjartastoppi í mars síðastliðnum. Síðan þá hefur hann náð ágætum bata en er samt sem áður fastur á Landspítalanum. Hann kemst ekki heim vegna þess að hann fellur ekki inn í kerfið. Hann er fastur í einhvers konar gíslingu á gráa svæði kerfisins. Fastur á Landspítalanum vegna þess að sveitarfélagið getur eða vill ekki veita honum þau úrræði sem hann á rétt á. Fastur vegna þess að ríkið getur eða vill ekki veita honum sjálfsögð mannréttindi. Þá má spyrja hvort um sé að ræða kerfislæg mannréttindabrot í skjóli þess að mismunandi stjórnsýslustig vísa ábyrgðinni hvort á annað.
Í frétt um málið hjá DV kemur eftirfarandi fram, með leyfi forseta:
„Samkvæmt upplýsingum DV úr stjórnkerfinu í Reykjanesbæ snýst málið um þau óljósu mörk sem geta verið á milli heilbrigðis- og félagsþjónustu. Heilbrigðisþjónusta sé á forræði ríkisins en félagsþjónustan á forræði sveitarfélaga og mál Friðriks falli í raun milli skips og bryggju, hvorugur aðili, hvorki sveitarfélagið né ríkið, sé reiðubúið að greiða fyrir umönnun Friðriks og á meðan þarf hann því að dvelja á Landspítalanum.“
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Stendur til að fram fari einhvers konar úttekt eða að fram komi tillögur að breytingum til þess að einhver taki ábyrgð þegar svona mál koma upp? Fellur það þá á endanum ekki á ríkið (Forseti hringir.) og þar á meðal þennan ráðherra að greiða úr flækjum á svona gráum svæðum þannig að ekki verði stunduð kerfislæg mannréttindabrot á sjúklingum?