skil þjónustu ríkis og sveitarfélaga í heilbrigðismálum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina sem er mjög brýn og eðli málsins samkvæmt þarf að taka á þessum málum. Ég ætla ekki að tjá mig um einstök mál sem eru til meðferðar. Það er hins vegar alveg ljóst að það eru mörg grá svæði, sérstaklega á skilum kerfa heilbrigðismála, tryggingamála og félagsþjónustu sveitarfélaga.
Verið er að gera nokkra gangskör á sumum sviðum í því að reyna að eyða út hinum gráu svæðum þó að þau verk séu e.t.v. ekki komin ýkja langt. Ég minni hv. þingmann t.d. á þá samþykkt sem Alþingi gerði nýverið á sviði geðheilbrigðisstefnu til næstu ára þar sem eitt ákvæðið er beinlínis um að skipað skuli með lögum um það samstarf sem eðlilega þarf að vera á milli þessara þjónustukerfa, annars vegar ríkisins og hins vegar sveitarfélaganna, og þess sem lýtur að geðheilbrigðismálum.
Örugglega má taka á fleiri málaflokkum í þessum efnum, t.d. varðandi þá einstaklinga sem þurfa þjónustu í heimahúsi. Þar hefur því verið sinnt af heilbrigðisþjónustunni eins og frekast er unnt, en það er vissulega dæmi, og ég tek alveg undir þær athugasemdir, sem eru þess eðlis að þau má bæta. Það er rétt sem hv. þingmaður bendir hér á, þegar þessi staða kemur upp vísa þjónustukerfin, þ.e. sveitarfélagið og ríkið, hvort á annað þegar um er að ræða tilfelli sem eru erfið úrlausnar. Það er sjálfsagður hlutur (Forseti hringir.) að taka sérhvert tilvik til skoðunar.