145. löggjafarþing — 119. fundur,  26. maí 2016.

skil þjónustu ríkis og sveitarfélaga í heilbrigðismálum.

[10:52]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Ég er ekki sammála hv. þingmanni í því að heilbrigðisstarfsmenn séu endalaust að firra sig ábyrgð á tilvikum sem þessu. (BirgJ: Ég var ekki að segja að heilbrigðisstarfsmenn gerðu það. Þeir sem bera ábyrgð á kerfinu firra sig ábyrgð á því.) Ef hv. þingmaður vill leyfa manni að svara hér skulum við hafa þann háttinn á að sá sem stendur í pontu tjáir sig um hlutina, en ekki eiga skoðanaskipti með þeim hætti (Gripið fram í.) sem hér er boðið upp á því að það skilar akkúrat ekki nokkrum sköpuðum hlut.

Þegar sagt er að sífellt berist sögur um brothætt kerfi gerast þó inn á milli ágætir hlutir í heilbrigðiskerfinu, svo því sé haldið til haga. Þegar kallað er eftir því hverju hæstv. ráðherra hafi áorkað í embættistíð sinni vil ég minna á það ákvæði sem komið er núna í samþykkta stefnu frá þinginu og áætlanir lúta til að verði komið í lög árið 2017. Þar eru skil á milli. Það er sömuleiðis verið að gera kröfulýsingu fyrir starfsemi heilsugæslunnar í Reykjavík þar sem kveðið er á um þverfaglega vinnu. Ef hv. þingmaður kynnti sér hlutina (Forseti hringir.) til hlítar og léti alla njóta sannmælis væri orðræða hv. þingmanns kannski með öðrum hætti.