dómstólar.
Hæstv. forseti. Eins og hv. þm. Höskuldur Þórhallsson þá hef ég nánast alla mína starfsævi unnið í þessu kerfi og ég get alveg sagt það hér að ég mundi vilja hafa margt öðruvísi en er í þessu frumvarpi. Ég styð samt þetta frumvarp vegna þess að meginprinsippið í því er það að allir geti fengið endurskoðun, það snýst um það. Ég legg hins vegar til að þingheimur fari í framhaldinu yfir helstu annmarka í þessu dómskerfi, laga það sem á að laga og gera það betra. Það er svo mikilvægt að þetta virki vel og fólk fái trú á dómstólana og allt það kerfi sem því fylgir. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)