145. löggjafarþing — 119. fundur, 26. maí 2016.
meðferð einkamála og meðferð sakamála.
616. mál
Virðulegi forseti. Ég sé á atkvæðatöflunni að þessi breytingartillaga slær ekki í gegn og kem hér eins og Kató gamli og endurtek að dómstólasýslan ætti að heita dómsýsla. Mér finnst það eiginlega furðulegt að þingheimur skuli ekki sjá sannleikann í því og velja það hugtak sem betur er lýsandi og þjálla í löggjöfinni. En ég verð að lúta þeirri niðurstöðu engu að síður og finnst það súrt í brotið.