samningur Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um staðfestingu samnings Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur sem áritaður var hinn 17. september síðastliðinn.
Það er svo að jafnvel þótt EES-samningurinn taki í sjálfu sér ekki til viðskipta um landbúnaðarvörur þá inniheldur samningurinn engu að síður ákvæði sem gerir ráð fyrir reglubundnum viðræðum um viðskipti með hefðbundnar landbúnaðarvörur. Samningur á þeim grunni var í fyrsta skipti frá gildistöku EES-samningsins gerður árið 2007. Var í honum gert ráð fyrir endurskoðun innan tveggja ára. Þessu til viðbótar inniheldur bókun 3 við samninginn ákvæði um viðskiptakjör með unnar landbúnaðarvörur, en hún var síðast endurskoðuð árið 2001.
Í maí 2011 óskuðu hagsmunasamtök eftir því að hafnar yrðu viðræður við ESB um aukna tollfrjálsa innflutningskvóta, einkum fyrir lambakjöt og skyr. Í þessu sambandi var ítrekað af hálfu stjórnvalda að búist yrði við því að auknu markaðsaðgengi á markað ESB mundu fylgja kröfur um greiðari aðgang ESB inn á íslenskan markað.
Hinn 19. júní árið 2012 samþykkti þáverandi ríkisstjórn að hefja nýjar viðræður við ESB og lauk þeim viðræðum með áritun samnings hinn 17. september 2015. Að því er varðar hefðbundnar afurðir þá er meginniðurstaða samninganna sú að tollfrjálsir innflutningskvótar Íslands fyrir skyr og lambakjöt til ESB eru stórauknir auk þess sem Ísland fær nýja kvóta fyrir aðrar kjöttegundir inn til ESB. Þess í stað er aukið umtalsvert við gildandi tollfrjálsa kvóta til handa ESB og opnað fyrir kvóta fyrir alifugla hingað til lands. Til að skapa svigrúm til aðlögunar fyrir viðkomandi búgreinar mun aukning kvótanna koma til framkvæmda á allt að fjögurra ára tímabili frá gildistöku samnings. Það felur í sér að búast má við að samningurinn verði að fullu kominn til framkvæmda árið 2021.
Varðandi unnar vörur falla allir tollar niður nema á jógúrt, smjörva og ís sem teljast verða meðal viðkvæmra vara fyrir íslenskan landbúnað. Að öðru leyti eru felldir niður tollar með gagnkvæmum hætti á um 100 nýjum tollalínum og samið er um lækkun á 20 öðrum, en ekki er talið að það hafi afgerandi áhrif á innlenda framleiðslu.
Það er rétt að geta þess að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra setti á fót vinnuhóp stjórnvalda og bænda og framleiðenda til þess m.a. að meta áhrif þessa samnings og eftir atvikum koma fram með tillögur um viðbrögð, ekki síst að því er varðar alifugla- og svínarækt. Vinnur hópurinn að lokahugmyndum um tilteknar aðgerðir sem tækifæri ætti að gefast til að fara yfir í utanríkismálanefnd.
Ég legg til, virðulegur forseti, að að lokinni þessari umræðu verði tillögunni vísað til síðari umræðu og hv. utanríkismálanefndar.