145. löggjafarþing — 119. fundur,  26. maí 2016.

samningur Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur.

783. mál
[12:37]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Það hefur verið áhugavert að fylgjast með þessari umræðu vegna þess að það er tekist svolítið hart á og menn eru ósammála og koma að umræðunni úr ólíkum áttum. En þó má segja að ákveðnir hlutir standi upp úr. Það er ánægjulegt og við ættum að geta sameinast um þá. Það er í mínum huga útilokað að ræða þessi mál nema í samhengi við búvörusamninginn. Hér er náttúrlega um að ræða mestu opnun sem nokkur ríkisstjórn hefur gengið í með þessum samningi um innflutning á landbúnaðarafurðum. Ég hefði að vísu og er þeirrar skoðunar að það sé gamaldags nálgun og úrelt að ganga frá búvörusamningum eins og við göngum núna. Ég tel að við ættum að gera þetta með þeim hætti að koma okkur saman um landbúnaðarstefnu, að sjálfsögðu eiga hagsmunasamtök bænda eins og önnur hagsmunasamtök að koma að því, en ég held að við ættum að setja okkur stefnumörkun til margra ára þannig að aðilar í greininni komi að henni — og það eru miklu fleiri aðilar í greininni en bændur eins og hér hefur komið fram, það eru þeir sem eru með úrvinnslu, þeir sem selja mat, það er ferðaþjónustan. Þeir eiga að koma að þessu. Þetta eru hagsmunir okkar allra. Mér hefur fundist vanta að menn líti á hlutina í því samhengi og nýti t.d. sóknarfærin sem felast í því að það eru 2 milljónir einstaklinga sem koma hingað á hverju ári og þeir eiga það sameiginlegt með okkur Íslendingum að þeir þurfa að borða. Það er bara almennt. Þó að þetta sé mjög mismunandi fólk af ýmsum þjóðernum þarf það allt að borða.

Kannski út af heppni, kannski út af framsýni bænda en svo sannarlega ekki út af þeim hagsmunaaðilum sem hafa talað í þá veru sem mér líkar vel, þ.e. talað fyrir frelsi, þá er ég að vísa í Neytendasamtökin, ég er að vísa í verslunina — þessir hagsmunaaðilar hafa ekki talað fyrir eða bent á styrkleika íslenskrar matvælaframleiðslu sem felst í hollustuháttum. Núna hefur það gerst svolítið af sjálfu sér að það er aðeins farið að tala um þetta, en ekki verið gerð nein krafa í þá átt af þeim aðilum. Mér sem neytanda finnst það pirrandi í besta falli að maður sé ekki upplýstur af þeim aðilum um muninn á mismunandi vöru, því að kjöt og kjöt er ekki það sama. Það voru bændur sem tóku ákvörðun um að nýta ekki sýklalyf eins og gert er í öðrum löndum og við Íslendingar búum svo vel að íslensk framleiðsla er með minnstu sýklalyfjanotkun í Evrópu ásamt Noregi. Nú veit ég ekki, en mér skilst að það hafi líka verið bændur sem ákváðu á sínum tíma að nota ekki hormón í sína framleiðslu eins og gert er t.d. vestan hafs, en þar er hins vegar gerður skýr greinarmunur á annars vegar hormónakjöti sem er á miklu lægra verði í verslunum og því kjöti sem er kallað „grass-fed“, sem manni finnst vera sjálfsagt, að grasbítar borði gras, og „organic“ sem er lífrænt. En við höfum ekki vakið athygli á þessum þáttum. Mér finnst þetta vera grundvallaratriði. Ég sem neytandi vil vita hvað ég er að kaupa. Auðvitað hefur þvælst í þessu sértrúarsöfnuður sem vill ganga í ESB sem ruglar alla umræðu. Það er alveg stórkostlegt að menn hafa í fullri alvöru talað um ESB sem eitthvert frelsisbandalag. ESB er tollabandalag. Það er tollabandalag.

Nú las ég leiðara Fréttablaðsins í gær þar sem ESB-sinni sagði að íslenskir bændur — og svipað kom fram hjá hv. þm. Guðmundi Steingrímssyni — ættu að ganga í ESB vegna þess að ESB verndaði svo vel bændurna sína. Það var útleggingin. Menn eru algjörlega komnir í marga hringi í röksemdafærslunni. En vandræði ESB sem við getum rætt síðar eru náttúrlega geigvænleg. Það hlýtur að segja eitthvað að endurskoðendur hafa ekki treyst sér til að skrifa upp á reikninga bandalagsins í nærri 20 ár. Og verndarstefna þeirra á alheimsvettvangi er ein af ástæðunum fyrir því að evrusvæðið, Evrópa ef við tökum hana sem heild er eina heimsálfan fyrir utan suðurheimskautssvæðið sem hefur ekki vaxið og dafnað á undanförnum áratug. Við höfum því miður ekki nálgast þetta með þeim hætti. Mér finnst prinsippin hins vegar í þessu samhengi vera góð að því leytinu til hvað við eigum að leggja áherslu á, en ég veit að margir eru mér ósammála, þegar kemur að verndinni. Það er margt í búvörusamningnum sem ég er mjög ósáttur við, ég veit ekki hvað ég næ að fara yfir mikið í þessari stuttu ræðu, en mér sýnist að við séum með svipaðan stuðning og ESB og EFTA-ríkin þegar kemur að hlutfallslegum stuðningi. En allt kerfið gengur hins vegar út á það að við erum að vernda hvíta kjötið. Nú er það alls góðs maklegt, en mér finnst það vera skrýtin landbúnaðarstefna af hálfu Íslendinga. Mér finnst að stuðningurinn eigi frekar að beinast að því sem er hefðbundinn íslenskur landbúnaður með það að markmiði að við séum með heilnæmasta landbúnað í heimi. Ég skil ekki, kannski er þetta misskilningur hjá mér, kannski geta einhverjir leiðrétt mig í því, en mér sýnist að við þyrftum ekki að gera mikið til þess að hefðbundinn íslenskur landbúnaður gæti verið flokkaður sem lífrænn. Við þurfum ekki að breyta miklu. Ég velti fyrir mér: Er það markmið sem við ættum að reyna að setja okkur að íslenskur landbúnaður gæti verið lífrænn og þeir aðilar sem hingað koma gætu treyst því? Mér finnst að við ættum að nálgast hlutina með þeim hætti að hafa einhverja sýn og nýta þá styrkleika sem við höfum.

Allt í einu er það sem hefur þótt vera veikleiki, þ.e. hvað við erum norðarlega, orðinn styrkleiki. Ef við skoðum t.d. sýklalyfjanotkun í Evrópu þá tengist hún nokkuð því hvort menn eru norðarlega eða sunnarlega. Þótt við náum ekki sama magni þá erum við með meira heilnæmi. Við sjáum það t.d. á þeim sem hér stendur að vandinn almennt í þjóðfélaginu, við skulum orða það þannig, er ekki sá að okkur vanti mat. Við sum hver borðum aðeins of mikið af honum. En það sem okkur vantar frekar er kannski heilnæmur matur, að borða minna og heilnæmara. En auðvitað finnst mér að fólk eigi að hafa frelsi til að borða það sem það vill, en við verðum að fá að vita hvað það er sem við erum að kaupa.

Þegar við komum að þessum samningi þá er þetta gríðarlega mikil opnun. Mér sýnist, það þarf að skoða það sérstaklega, að hér sé verið að opna fyrir þær vörur sem eru ekki framleiddar hér á landi en við erum farin að nota og munum nota í auknum mæli eins og ýmsa osta. Það er löngu kominn tími á það. En það er til lítils ef við erum áfram með uppboðskerfið sem við erum með varðandi úthlutun tollkvótanna. Til dæmis svo ég nefni eitt, fæða sem ég borða mjög mikið af eins og parmesanostur, verðlagning á honum er algjörlega fáránleg, hún er ekki í neinu samræmi við það sem hún þyrfti að vera. Mundi einhver segja: Þessi vara er í samkeppni við brauðost? Parmesanostur er ekki í neinni samkeppni við brauðost ef ég tek bara ákveðið dæmi. Það er ekki þannig og það er pláss fyrir hvort tveggja.

Góður félagi minn, smáatvinnurekandi í Reykjavíkurborg, selur osta. Hann fullyrðir og ég treysti því að því meira úrval sem hann býður upp á, því meiri sala er á íslensku ostunum. Það er hvatning til þess. Reyndar fórum við í allra handa svokallaðar hagræðingaraðgerðir til að þjappa úrvinnslunni á fáa staði vegna þess að menn töldu að það væri samkeppni fram undan. Samkeppnin átti að koma að utan. Auðvitað mun samkeppnin koma að utan einhvern tímann, það gerist ekki alveg á næstunni, sýnist mér, en næst þegar fer að harðna í heiminum munu menn gera alþjóðasamninga sem við munum ekki geta stýrt. Þá er spurning hvar við ætlum að staðsetja okkur ef við viljum halda í íslenska framleiðslu, sem ég held að flestir vilji og séu tilbúnir að leggja eitthvað á sig til þess. Ég held að rökin felist í því að vera með hinar hefðbundnu íslensku landbúnaðarafurðir. Ef við erum með annars konar framleiðslu sem er stundum kölluð verksmiðjuframleiðsla, þá verður hún að standast samkeppni við það sem kemur annars staðar frá.

Virðulegi forseti. Ég hefði viljað lengri tíma til að ræða þetta, ég var á fundi í útlöndum þegar við ræddum búvörusamninginn, ég hef bara tíu mínútur til að ræða þessa hluti hér, en ég held að við þurfum að ræða þetta tvennt saman. Það er í sjálfu sér gott að hafa opnunina, en við þurfum að svara því hvernig framkvæmdin verður. Ef við höfum það fyrirkomulag sem við erum með núna, uppboð á tollkvótum, þá náum við ekki þeim markmiðum sem við viljum. Það er ekki gott fyrir neytendur. Það er heldur ekki gott fyrir bændur. Þannig að mér finnst mikilvægt að við ræðum það í þessu samhengi, (Forseti hringir.)en síðan held ég að væri best, nú veit ég ekki hvort það sé mögulegt að laga þessa búvörusamninga sem liggja fyrir, hvaða sveigjanleika við höfum í því, (Forseti hringir.) en það er efni í aðra ræðu að fara yfir það.