framtíðarsýn í skattkerfum og samfélagslegt hlutverk skatta.
Frú forseti. Ég fagna umræðunni um hlutverk skattkerfisins og þróun þess. Á undanförnum árum hafa kannski verið slíkir tímar að við a.m.k. til skamms tíma vorum tilneydd til að horfa á tekjuöflunarhlutverk skattkerfisins og á síðasta kjörtímabili voru innleiddir fjöldamargir skattar undir tekjuöflunarrökunum, sú hlið varð til á því máli að þar væri líka verið að horfa á jöfnunarhlutverkið en meginröksemdin t.d. fyrir auðlegðarskattinum á sínum tíma var sú að hér væri um tímabundinn skattstofn að ræða vegna bágrar stöðu ríkissjóðs. Við höfum rétt mjög úr kútnum í millitíðinni, ríkissjóður er rekinn með afgangi um þessar mundir og það er vel tímabært að velta fyrir sér framtíðarhlutverki tekjuöflunarkerfa ríkisins og hvernig við getum náð þeim meginmarkmiðum sem við erum sammála um á hverjum tíma. Ég ætla að segja sem megininnlegg mitt hér að mér hafa þótt tekjuöflunarkerfin, þá sérstaklega það sem snýr að einstaklingum, tekjuskattskerfið og samspil þess við bótakerfin, einfaldlega vera allt of flókin. Mér finnst vera misvísandi skilaboð í kerfunum.
Tökum sem dæmi einstakling með tekjur allt að 1.300.000 kr. Hann getur á sama tíma verið þiggjandamegin í barnabótakerfinu. Hvernig getum við komist að þeirri niðurstöðu að eftir að viðkomandi er kominn í um 800.000 kr. séu rök til þess í tekjuskattskerfinu að setja sérstaka viðbótarprósentu á tekjuskattinn, ekki í fyrsta skiptið heldur í annað skiptið, sem sagt í efsta þrepinu, en þá á viðkomandi eftir mörg hundruð þúsund krónur áður en hann missir réttinn til barnabóta? Þetta samspil bótakerfanna við tekjuskattskerfið og flækjustigið í því er mér eitt helsta hugðarefnið þegar kemur að einstaklingum og jaðarskattarnir sem af því leiða. Við verðum að horfa á kerfin saman og þau eru orðin býsna flókin, með þriggja þrepa tekjuskattskerfi í dag og tiltölulega háum persónuafslætti og vaxtabótakerfi, barnabótakerfi og núna nýjast húsnæðisbótakerfi, hvert með sínum tekjumörkum. Þetta er orðið býsna flókið fyrir venjulegan Íslending að átta sig á og hvar hann í öllum þessum kerfum og samspili þeirra lendir í þakinu og fær á sig háan jaðarskatt. Þetta er það sem ég vildi segja um einstaklingana. Mér finnst töluvert verk fram undan fyrir okkur að einfalda þessa mynd.
Ég er talsmaður þess að við gerum minna af millifærslum og skiljum eftir hvatana hjá fólki til að hjálpa sér sjálft eins og hægt er. Þess vegna höfum við nú þegar lögfest brottfall miðþrepsins. Ég horfi þannig á tekjuskattskerfið að mér sýnist að tekjuskattsprósentan á Íslandi fyrir meðaltekjur og þar fyrir ofan sé í hærri kantinum borið saman við önnur lönd. Ég sé ekki mikla ástæðu til að fara miklu hærra. Ég hef alltaf verið talsmaður þess að við eigum ekki að vera með eignarskatta. Ég taldi það mikið framfaraskref þegar við afnámum þá á sínum tíma og ég tek eftir því að það er verið að afnema eignarskatta í öðrum löndum. Ég nefni sem dæmi í Noregi þar sem núverandi ríkisstjórn hefur sett það á dagskrá að fella niður eignarskattinn sem þar birtist sem auðlegðarskattur.
Ég ætla líka að benda á að þar höfðu menn þó a.m.k. vit á því þegar þeir voru með auðlegðarskatt — þeir eru svo sem með hann enn þá — að undanskilja bróðurpartinn af virði fasteignanna frá skattlagningu, vegna þess að það er gríðarlega íþyngjandi fyrir fólk að þurfa að greiða skatta af fasteignunum.
Varðandi fyrirtækjaskatta og aðra skatta sem hér eru nefndir tek ég undir með hv. þingmanni að við þurfum að fylgjast með breytingunum sem eru að verða í þjóðfélaginu, samanber það þegar við sáum þá tilhneigingu hjá einstaklingum að stofna einkahlutafélög utan um launatekjur sínar, en mér finnst við hafa tekið ágætlega á því með því að fyrirtækjaskattsprósentan ásamt með fjármagnstekjuskattinum er sambærileg við tekjuskatt einstaklinga. Ég er ekki sammála því að það sé mikið gap þar á milli.
Svo vil ég líka halda því til haga, vegna þess að við tölum iðulega um jöfnuð í íslensku samfélagi og hlutverk skattkerfisins til að tryggja jöfnuð, sem vissulega skiptir máli og ég er þeirrar skoðunar að eitt það helsta sem einkenni okkur sem samfélag sé hinn óskrifaði samfélagslegi sáttmáli um að enginn verði skilinn eftir og við séum öll þátttakendur í því að byggja hér upp lífsgæðin, (Forseti hringir.) að okkur hefur tekist býsna vel á mælikvarða Gini-stuðulsins og margra annarra mælikvarða. Höldum því ávallt til haga í þessari umræðu að jafnvel þótt við viljum gera betur höfum við náð mjög markverðum árangri.