145. löggjafarþing — 119. fundur,  26. maí 2016.

þjóðaröryggisráð.

784. mál
[16:55]
Horfa

utanríkisráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Í raun og veru er spurt: Er nauðsynlegt að trúnaður ríki á fundum þjóðaröryggisráðs? Við töldum rétt að kveða sérstaklega á um trúnað þegar kemur að fundum þjóðaröryggisráðsins, eðli máls samkvæmt. Um rétt að upplýsingum gilda almenn upplýsingalög en gera má ráð fyrir að undanþáguákvæði þeirra geti oft átt við. Vitanlega verður þó tekin afstaða til beiðna um upplýsingar í hverju tilviki fyrir sig eins og gengur og gerist í stjórnsýslunni.